Fotbolti.net

Leita

Leita í fréttum

Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.

Leitarhamur

Dagsetning

Ef ekkert leitarorð er slegið inn notar síðan dagsetninguna sem einfalt fréttasafnsfilter.

Niðurstöður

Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögn og texta skilaði 25134 niðurstöðum.

Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.

Niðurstöður

FRÉTTIR02.09.2024, 22:40

Ingibjörg til Bröndby (Staðfest)

Landsliðskonan Ingibjörg Sigurðardóttir hefur skrifað undir samning við danska félagið Bröndby en hann gildir út 2025. Þetta kemur fram á heimasíðu félagsins í kvöld.

FRÉTTIR02.09.2024, 06:00

Man City lánar Kabore til Benfica (Staðfest)

Hinn 23 ára gamli Issa Kabore hefur verið lánaður frá Manchester City til portúgalska félagsins Benfica. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félögunum.

FRÉTTIR31.08.2024, 10:33

Chalobah til Crystal Palace (Staðfest)

Trevoh Chalobah er mættur til Crystal Palace en hann kemur á láni frá Chelsea út tímabilið á Englandi. Chalobah er 25 ára varnarmaður sem hefur einnig spilað inn á miðsvæðinu. Hann er uppalinn hjá Chelsea og braut sér lið inn í aðalliðshóp félagsins fyrir tímabilið 2021/22 og vann strax Ofurbikar Evrópu í fyrsta leik. Alls á hann að baki 80 leiki með aðalliði Chelsea á síðustu þremur tímabilum.

FRÉTTIR31.08.2024, 08:20

Samantekt - Það helsta sem gerðist á gluggadeginum

Ensku úrvalsdeildarfélögin eyddu meira en 1,96 milljarði punda í sumarglugganum sem er rúmlega tvöfalt meira en næsta deild á eftir, ítalska A-deildin. Átta félög í deildinni settu félagsmet í eyðslu í einum glugga en klukkan 22:00 í gær var glugganum skellt í lás. Hér má sjá samantekt á því helsta sem átti sér stað.

FRÉTTIR31.08.2024, 06:00

Cantwell til Blackburn (Staðfest)

Todd Cantwell er kominn til Blackburn Rovers frá Rangers í Skotlandi. Hjá Blackburn verður Cantwell liðsfélagi Arnórs Sigurðssonar. Þessi 26 ára hæfileikaríki leikmaður fer í treyju númer átta á Ewood Park. Hans uppáhalds staða er sem sóknarmiðjumaður, tía. Hann er fyrrum leikmaður Norwich og lék um stutt skeið hjá Bournemouth á lánssamningi. Blackburn er með sjö stig úr þremur fyrstu leikjum sínum í Championship-deildinni þetta tímabilið.

FRÉTTIR31.08.2024, 01:43

Jadon Sancho til Chelsea (Staðfest) - Árangurstengd kaupskylda

Chelsea hefur fengið Jadon Sancho í sínar raðir frá Manchester United. Sancho kemur á láni frá United og fylgir kaupskylda lánssamningnum. Kaupskyldan er árangurstengd, kaupverðið verður allavega 20 milljónir punda en getur hækkað upp í allt að 25 milljónir punda út frá frammistöðu Chelsea í vetur. Því hærra sem Chelsea endar, því hærra verður kaupverðið. Ef Chelsea endar ekki í einu af efstu 14 sætum deildarinnar, þá þarf félagið ekki að kaupa Sancho.

FRÉTTIR31.08.2024, 01:05

Chelsea lánar Broja til Everton (Staðfest)

Albanski sóknarmaðurinn Armando Broja er kominn til Everton á lánssamningi út tímabilið. Broja var á leið til Ipswich fyrr í þessari viku en meiðsli komu í ljós í læknisskoðun. Það hefur hinsvegar ekki stoppað Everton í að sækja þennan 23 ára leikmann. Hann mun samstundis fara í hendur læknaliðs Everton til að ljúka endurhæfingu sinni.

FRÉTTIR31.08.2024, 00:46

Sterling til Arsenal (Staðfest)

Raheem Sterling hefur verið tilkynntur hjá Arsenal. Hann kemur til félagsins á láni frá Chelsea út tímabilið. Arsenal er það lið sem talið er líklegast til að veita Manchester City samkeppni um Englandsmeistaratitilinn en margir voru á því að liðið þyrfti að bæta við sóknarleikmanni. Nú er Sterling mættur með alla sína reynslu. <i>„Þetta er mögnuð tilfinning, ég er fullur tilhlökkunar. Ég tel að þetta passi fullkomlega fyrir mig og ég er ótrúlega ánægður með að þetta hafi tekist,"</i> segir Sterling. <i>„Það er hungur og samheldni hérna, og ég vil vera með í því."</i> Sterling er 29 ára og hefur leikið 82 landsleiki fyrir England. Hann var ekki í plönum Enzo Maresca stjóra Chelsea.

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.