Matthijs de Ligt til Man Utd (Staðfest)
Manchester United hefur tilkynnt kaupin á hollenska varnarmanninum Matthijs De Ligt en hann kemur frá Bayern München fyrir 43 milljónir punda.
Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.
Niðurstöður
Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögnum skilaði 24409 niðurstöðum.
Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.
Manchester United hefur tilkynnt kaupin á hollenska varnarmanninum Matthijs De Ligt en hann kemur frá Bayern München fyrir 43 milljónir punda.
Danski miðjumaðurinn Matthias Præst hefur skrifað undir þriggja ára samning við KR en hann mun formlega ganga í raðir félagsins frá Fylki eftir tímabilið.
RB Leipzig hefur staðfest kaupin á norska landsliðsmanninum Antonio Nusa en hann kemur frá Club Brugge í Belgíu.
Bournemouth hefur keypt mexíkóska bakvörðinn Julian Araujo frá Barcelona en kaupverð er ekki gefið upp. Þessi 23 ára leikmaður fór til Barcelona síðasta sumar en var strax lánaður til Las Palmas þar sem hann lék 25 leiki í La Liga.
Leiknir staðfesti rétt í þessu að félagið væri búið að semja við Dusan Brkovic um að leika með liðinu. Dusan er gífurlega reynslumikill serbneskur miðvörður sem hefur leikið á Íslandi undanfarin ár, fyrst með KA í þrjú tímabil og svo með FH á þessu tímabili.
Marcelo Deverlan, 24 ára Brasilíumaður, er genginn í raðir Njarðvíkur og skrifar undir samning sem gildir út tímabilið 2025. Hann er varnarmaður, hafsent, sem hefur spilað í Brasilíu nánast allan sinn feril. Hann var í Red Bull Bragantino en hefur einnig verið á mála hjá Corinthians og Livorno á Ítalíu. Hann lék í vetur með Trofense í portúgölsku C-deildinni.
Grindavík hefur fengið liðsstyrk fyrir lokasprettinn á tímabilinu því Ármann Ingi Finnbogason er kominn á láni frá ÍA. Ármann er tvítugur miðjumaður sem er samningsbundinn ÍA út næsta tímabil. Hann hefur komið við sögu í átta leikjum í Bestu deildinni og einum leik í bikarnum.
Miðjumaðurinn Jón Breki Guðmundsson er genginn í raðir ÍA frá KFA. Hann er kominn með leikheimild með ÍA fyrir komandi leik gegn Víkingi næsta mánudag. Jón Breki er fæddur árið 2008 og kom við sögu í tólf leikjum í 2. deild karla í sumar, einum leik í Mjólkurbikarnum og tveimur í Fótbolti.net bikarnum. Fyrsti deildarleikur hans kom á síðasta tímabili. Hann var skráður í Þrótt Neskaupstað.
Hægri bakvörðurinn Aaron Wan-Bissaka er genginn í raðir West Ham frá Manchester United. Verið var að staðfesta þessi félagaskipti. West Ham borgar um 15 milljónir punda fyrir Wan-Bissaka. Hann skrifar undir sjö ára samning við Lundúnafélagið.
Franska félagið Olympique de Marseille hefur staðfest kaup á argentínska markverðinum Gerónimo Rulli sem kemur úr röðum Ajax.
Valur hefur keypt hinn 27 ára gamla Albin Skoglund frá sænska B-deildarfélaginu Utsiktens BK og er hann þegar kominn með leikheimild með félaginu.
Enska úrvalsdeildarfélagið Brentford er búið að festa kaup á portúgalska sóknartengiliðnum Fábio Carvalho sem kemur úr röðum Liverpool.
Borussia Dortmund er að ganga frá kaupum á Maximilian Beier, 21 árs sóknarleikmanni Hoffenheim.
Brasilíski bakvörðurinn Emerson Royal er að skipta yfir til AC Milan fyrir um 15 milljónir evra.
Argentínski framherjinn Lautaro Martínez er loksins búinn að gera nýjan samning við Inter eftir miklar umræður síðustu mánuði.
Stjarnan hefur kallað Þorlák Breka Baxter úr láni en hann hefur verið á láni hjá Selfossi frá því á lokadegi fyrri félagaskiptaglugga ársins. Selfoss hefur átt gott tímabil í 2. deild og er liðið á toppi deildarinnar með sex stiga forskot þegar sex umferðir eru eftir.
Atletico Madrid hefur tilkynnt um komu Julian Alvarez til félagsins frá Manchester City. Hann er keyptur á 75 milljónir evra og kaupverðið getur hækkað um 20 milljónir evra til viðbótar með árangurstengdum greiðslum. Alvarez er 24 ára og keypti City hann á um 20 milljónir evra frá River Plate í janúar 2022. Salan til Atletico er sú hæsta í sögu Manchester City. Raheem Sterling var fyrir þessa sölu sá dýrasti sem hafði farið frá City. Hann skrifar undir sex ára samning við Atletico. Hann er næstdýrastur í sögu spænska félagsins, fer fyrir ofan Thomas Lemar sem var sá næstdýrasti. Joao Felix er langdýrastur en hann kostaði 127 milljónir evra þegar hann kom frá Benfica.
Valur hefur kallað Orra Hrafn Kjartansson til baka úr láni frá Fylki. Hann er kominn með leikheimild með Val fyrir leikinn gegn Breiðabliki.
Jón Arnar Barðdal hefur fengið félagaskipti frá KFG yfir í ÍBV og mun því klára tímabilið með Eyjamönnum. Jón Arnar er 28 ára sóknarmaður sem hefur spilað með KFG frá og með tímabilinu 2022 en þar á undan lék hann með HK í tvö tímabil. Hann hefur einnig leikið með ÍR, Fjarðabyggð, Þrótti og Skínanda á sínum ferli og á að baki þrettán keppnisleiki með uppedlisfélaginu Stjörnunni tímabilin 2014/15.
Heimir Hallgrímsson hefur staðfest það teymi sem verður með honum í þjálfun írska landsliðsins. Þar á meðal er markvarðaþjálfarinn Guðmundur Hreiðarsson. Þetta er þriðja landsliðið þar sem Heimir og Guðmundur vinna saman hjá en þeir voru hjá Íslandi og Jamaíku. <i>„Guðmundur hefur verið mikilvægur hluti af þjálfarateymunum í gegnum minn feril og ég er hæstánægður með að hann geti starfað með mér áfram,"</i> segir Heimir við heimasíðu írska fótboltasambandsins.