Deniz Undav dýrastur í sögu Stuttgart (Staðfest)
Sóknarmaðurinn Deniz Undav er genginn í raðir Stuttgart frá Brighton. Þetta var staðfest í dag, en Undav er dýrasti leikmaður í sögu Stuttgart. Kaupverðið er um 32 milljónir evra.
Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.
Niðurstöður
Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögnum skilaði 24410 niðurstöðum.
Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.
Sóknarmaðurinn Deniz Undav er genginn í raðir Stuttgart frá Brighton. Þetta var staðfest í dag, en Undav er dýrasti leikmaður í sögu Stuttgart. Kaupverðið er um 32 milljónir evra.
Stjarnan tryggði sér í dag markvörð fyrir komandi átök í Bestu deild kvenna því Halla Margrét Hinriksdóttir hefur fengið félagaskipti frá Breiðabliki yfir í Stjörnuna. Halla Margrét er markvörður sem lék síðast með Aftureldingu á undirbúningstímabilinu fyrir tímabilið 2022 en var þar á undan markvörður Stjörnunnar seinni hluta tímabilsins 2021. Hún er 29 ára og var varamarkvörður fyrir Telmu Ívarsdóttur seinni hluta síðasta tímabils.

Ítalski framherjinn Mateo Retegui er genginn til liðs við Atalanta frá Genoa.

Kristín Dís Árnadóttir hefur skrifað undir samning við Breiðablik en hún mun leika með liðinu út sumarið.

Keflavík hefur fengið liðsstyrk fyrir komandi átök í Bestu deild kvenna því Simona Rebekka Meijer er gengin í raðir félagsins og komin með leikheimild fyrir næsta leik liðsins. Meijer er landsliðskona Norður-Makedóníu en er einnig með tengingar til Hollands. Hún á að baki fjóra landsleiki, lék með landsliðinu í undankeppni EM í sumar.
Portúgalski varnarmaðurinn Pepe tilkynnti í dag að skórnir væru farnir upp í hillu, leikmannaferli hans væri lokið. Pepe er 41 árs og voru hans síðustu leikir á ferlinum með portúgalska landsliðinu. Pepe tilkynnti tíðindin með kveðjumyndbandi á Instagram. Hann lék 878 leiki á sínum ferli og vann 34 titla. Hann lék með Maritimo, Porto, Real Madrid, Besiktas og lauk svo ferlinum með fimm tímabilum hjá Porto. Hann vann Meistaradeildina þrisvar, portúgölsku deildina fjórum sinnum og spænsku deildina þrisvar. Hann vann EM og Þjóðadeildina með landsliðinu; lék alls 141 landsleik og skoraði átta mörk. Hann var maður leiksins í úrslitaleik EM 2016 þegar Portúgalir lögðu lið Frakka að velli.
Chelsea hefur tryggt sér varnarmanninn Aaron Anselmino frá Boca Juniors en hann er keyptur á 15,6 milljónir punda. Þessi nítján ára strákur hefur skrifað undir sjö ára samning við Chelsea en mun verða áfram hjá argentínska félaginu út komandi tímabil sem hluti af samkomulaginu. Hann spilaði sinn fyrsta leik fyrir aðallið Boca 2023 og hefur spilað tíu leiki alls.
Danski sóknarmaðurinn William Osula hefur verið keyptur til Newcastle frá Sheffield United. Hann er 21 ársins og er kaupverð 15 milljónir punda. Hann skoraði þrjú mörk í 31 aðalliðsleik fyrir Sheffield, sem féll úr úrvalsdeildinni á síðustu tímabili. Hann á fimm U21 landsleiki fyrir Danmörku.

Patrik Orri Pétursson, leikmaður Gróttu, hefur framlengt samning sinn við félagið út tímabilið 2026.

Alfie Gilchrist er búinn að ganga í raðir Sheffield United á láni. Gilchrist kemur frá úrvalsdeildarliðinu Chelsea hann er uppalinn þar.

Argentíski framherjinn Alejo Veliz hefur gengið til liðs við La Liga liðsins Espanyol. Veliz er tvítugur en hefur spilað í spænsku úrvalsdeildinni áður.

Tim Ream hefur yfirgefið Fulham, félagið greindi frá því á samfélagsmiðlum í dag. Hann átti innan við ár eftir af samningi sínum við félagið og hefur verið þar í níu ár. Hann er genginn í raðir Charlotte FC í bandarísku MLS deildinni. Ream kom til Fulham frá Bolton árið 2ö15 og lék yfir 300 leiki í öllum keppnum. Það eru breytingar í varnarlínu Fulham því Tosi Adarabioyo fór til Chelsea í sumar. Fulham krækti í Jorge Cuenca frá Villarreal og skoða hvort hægt sé að fá Diego Carlos frá Aston Villa.
Argentínumaðurinn hæfileikaríki Valentin Carboni hefur gengið í raðir franska liðsins Marseille. Þessi nítján ára sóknarmiðjumaður var á láni hjá Monza á síðasta tímabili og vakti athygli, hann skoraði tvö mörk og átti fjórar stoðsendingar. Hann fer til Marseille á lánssamningi með möguleika á kaupum eftir tímabilið. Inter vill samt ekki sleppa tökunum alfarið á Carboni og er með sérstaka klásúlu um að geta keypt hann til baka. Hjá Marseille mun Carboni spila undir stjórn Roberto De Zerbi og hefur fengið treyju númer 7.
Markvörðurinn Sveinn Sigurður Jóhannesson, sem gekk nýlega í raðir Vestra, varð fyrir því óláni að slíta hásin á æfingu á mánudaginn og verður því frá út tímabilið. Sveinn var fenginn frá Val til að fylla skarð Marvins Darra sem hafði verið varamarkvörður liðsins en hann er að setjast á skólabekk. „Við óskum Sveini góðan bata og hlökkum til sjá hann sem fyrst á vellinum aftur," segir í tilkynningu Vestra en félagið hefur þegar fengið inn nýjan markvörð. Sá er danskur og heitir Benjamin Schubert. Hann er með reynslu úr fyrstu og annari deild í Danmörku og efstu deild í Færeyjum. Á síðasta tímabili lék hann með B68 í Tóftum í færeysku Betri deildinni.
Argentínumaðurinn knái Ángel Di María er búinn að gera eins árs samning við Benfica í Portúgal eftir misheppnaða tilraun til að snúa aftur í argentínska boltann í sumar.
Enska Championship félagið West Bromwich Albion ætlar sér stóra hluti á næstu leiktíð þar sem stefnan er sett á endurkomu í úrvalsdeildina frægu.
Portsmouth er búið að næla sér í mikilvægan liðsstyrk fyrir komandi leiktíð í Championship deildinni, eftir að félagið gerði sér lítið fyrir og vann League One deildina á síðustu leiktíð.
Brasilíski miðvörðurinn Gleison Bremer er búinn að gera nýjan samning við ítalska stórveldið Juventus sem bindur hann við félagið næstu fimm árin, eða til sumarsins 2029.
Knattspyrnudeild Víkings og Vestri hafa náð samkomulagi um kaup Víkings á Tarik Ibrahimagic og í dag skrifaði Tarik undir samning við Víking út leiktíðina 2026. Vestri sagði frá því fyrr í dag að leikmaðurinn hefði verið seldur og núna hefur Víkingur staðfest kaup á honum. Tarik er 23 ára danskur miðjumaður sem gekk í raðir Vestra síðasta sumar og hjálpaði liðinu að vinna sér sæti í Bestu deildinni.
Rétt í þessu tilkynnti KR að þeir Ástbjörn Þórðarson og Gyrðir Hrafn Guðbrandsson væru búnir að skrifa undir fimm ára samning við KR. Þeir yfirgefa FH og ganga í raðir KR nú þegar. Samningar þeirra við FH áttu að renna út eftir tímabilið. Á sama tíma skrifar Kristján Flóki Finnbogason undir samning við FH en hann kemur frá KR. Ástbjörn og Gyrðir eru uppaldir í KR og Kristján Flóki er uppalinn í FH. Samningur Flóka við KR var út næsta tímabil. Félagaskiptin hafa legið í loftinu að undanförnu og var gengið frá öllum lausum endum í dag.