Fotbolti.net

Leita

Leita í fréttum

Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.

Leitarhamur

Dagsetning

Ef ekkert leitarorð er slegið inn notar síðan dagsetninguna sem einfalt fréttasafnsfilter.

Niðurstöður

Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögnum skilaði 24418 niðurstöðum.

Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.

Niðurstöður

FRÉTTIR10.07.2024, 18:33

Enzo Le Fée til Roma (Staðfest)

Ítalska félagið Roma hefur staðfest kaupin á franska miðjumanninum Enzo Le Fée en hann kemur til félagsins frá Rennes.

FRÉTTIR10.07.2024, 17:30

Spinazzola til Napoli (Staðfest)

Vinstri bakvörðurinn Leonardo Spinazzola hefur skrifað undir tveggja ára samning við Napoli en hann kemur til félagsins á frjálsri sölu eftir að samningur hans við Roma rann út. Spinazzola er 31 árs og hefur leikið 24 landsleiki fyrir Ítalíu en hann varð Evrópumeistari með landsliðinu fyrir nokkrum árum.

FRÉTTIR10.07.2024, 14:16

Heimir Hallgríms tekur við Írlandi (Staðfest)

Heimir Hallgrímsson hefur verið ráðinn nýr landsliðsþjálfari Írlands en þetta var staðfest í dag. Heimir gerði frábæra hluti með íslenska landsliðið þar sem hann kom strákunum okkar á tvö stórmót í röð, EM 2016 og HM 2018, og náði sögulegum árangri.

FRÉTTIR10.07.2024, 10:07

Sveinn Sigurður í Vestra (Staðfest)

Markvörðurinn Sveinn Sigurður Jóhannesson hefur skrifað undir samning við Vestra. Sveinn sem er uppalinn hjá Stjörnunni, gengur til liðs við Vestra frá Val þar sem hann spilaði sjö leiki á síðasta tímabili. <i>„Sveinn er mættur á Vestfjarðakjálkann og tók þátt í sinni fyrstu æfingu í gær. Við bjóðum hann hjartanlega velkominn í Vestra,"</i> segir í tilkynningu félagsins.

FRÉTTIR09.07.2024, 17:30

Forest fær brasilískan markvörð sem er 2,04 metrar (Staðfest)

Nottingham Forest hefur fengið til sín brasilíska markvörðinn Carlos Miguel frá Corinthians. Þessi 25 ára markvörður er mjög hávaxinn eða 2,04 metrar á hæð. Miguel er 24 ára og segist virkilega ánægður og stoltur af því að ganga í raðir félagsins.

FRÉTTIR09.07.2024, 17:03

Jason Daði seldur til Grimsby (Staðfest)

Breiðablik tilkynnti rétt í þessu að félagið hefði náð samkomulagi við enska félagið Grimsby um kaup enska félagsins á Jasoni Daða Svanþórssyni. Hann hefur því spilað sinn síðasta leik í bili fyrir Breiðablik. Félagaskiptin hafa legið í loftinu að undanförnu en Fótbolti.net greindi fyrst frá því hvaða félag væri að sækjast eftir kröftum Jasonar. Það er ljóst að Breiðablik er að missa algjöran lykilmann í liði sínu. Jason átti innan við hálft ár eftir af samningi sínum við Breiðablik.

FRÉTTIR09.07.2024, 14:32

Varamarkvörður Brentford til Aþenu (Staðfest) - Leiðin greiðari fyrir Hákon

Thomas Strakosha, landsliðsmarkvörður Albaníu, er farinn frá Brentford og genginn í raðir AEK Aþenu. Gríska félagiðfær hann á frjálsri sölu frá Brentford. Strakosha var varamarkvörður fyrir Mark Flekken á tímabilinu. Strakosha lék einungis sex leiki fyrir Brentford á tveimur tímabilum. Hann er 29 ára og var áður hjá Lazio.

FRÉTTIR09.07.2024, 14:30

Moise Kean til Fiorentina (Staðfest)

Moise Kean hefur gengið í raðir Fiorentina frá Juventus fyrir 13 milljónir evra en upphæðin gæt hækkað um 5 milljónir eftir ákvæðum. Samningur Kean, sem er fyrrum leikmaður Everton, átti að renna út eftir ár. Hann lék sinn fyrsta leik í ítölsku A-deildinni fyrir Juventus árið 2016, sextán ára gamall. Kean hefur einnig spilað fyrir PSG en hann er með 22 mörk í 114 leikjum í ítölsku A-deildinni. Hann hefur þegar hafið æfingar hjá Fiorentina undir nýjum þjálfara liðsims, Raffaele Palladino.

FRÉTTIR09.07.2024, 14:13

Stefán Teitur í Preston (Staðfest) - „Best með klökum"

Stefán Teitur Þórðarson er genginn í raðir Preston en enska félagið tilkynnti um komu hans rétt í þessu. Preston kaupir Stefán frá Silkeborg þar sem Stefán átti hálft ár eftir af samningi og er Preston sagt greiða um 700 þúsund evrur fyrir íslenska landsliðsmanninn. Stefán var kynntur með skemmtilegu myndbandi á samfélagsmiðlum Preston. Þar sést Mads Frøkjær-Jensen, leikmaður Preston, fá sér gosdrykk með klökum og taka svo víkingaklappið. Við færsluna er skrifað 'Best served with ice'. Hann var orðaður við bæði Derby og QPR áður en Preston blandaði sér inn í baráttuna um helgina. Stefán sem er 25 ára miðjumaður skrifar undir þriggja ára samning við Preston ef hann fær atvinnuleyfi. Stefán hafði verið hjá Silkeborg í fjögur ár, skrifaði undir þar haustið 2020 eftir gott tímabil með uppeldisfélaginu ÍA.

FRÉTTIR09.07.2024, 12:30

Bellamy nýr landsliðsþjálfari Wales (Staðfest)

Craig Bellamy er nýr landsliðsþjálfari Wales en hann skrifaði undir fjögurra ára samning til ársins 2028. Hann tekur við af Robert Page sem var rekinn í júní. Bellamy lék 78 landsleiki með Wales sem leikmaður og segir það gríðarlegan heiður að fá að stýra landsliði þjóðar sinnar. Hann lýsir þessu sem stoltustu stund ferilsins. Það hafi alltaf verið sinn draumur að verða landsliðsþjálfari Wales.

FRÉTTIR09.07.2024, 10:02

Aron Snær aftur í Þrótt (Staðfest)

Aron Snær Ingason er genginn í raðir Þróttar að nýju og hefur skrifað undir þriggja ára samning. Aron kom við sögu í sjö leikjum með Fram í Bestu deildinni á þessu tímabili en í öll skiptin sem varamaður. Þessi 22 ára sóknarleikmaður þekkir vel til Þróttar þar sem hann hefur leikið síðustu tvö tímabil sem lánsmaður, hann hjálpaði liðinu að komast upp úr 2. deild 2022 og skoraði svo átta mörk í fimmtán leikjum í Lengjudeildinni í fyrra.

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.