Fotbolti.net
08.07.24 - 19:20
Ívan Guðjón Baldursson

Arsenal missir Cozier-Duberry til Brighton (Staðfest)

Arsenal missir Cozier-Duberry til Brighton (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Hinn gífurlega eftirsótti Amario Cozier-Duberry hefur kosið Brighton sem næsta áfangastað. Hann hafnaði nýju samningstilboði frá Arsenal.
Cozier-Duberry er gríðarlega efnilegur kantmaður sem hefur leikið lykilhlutverk í unglingaliðum Arsenal og er með 20 leiki að baki fyrir yngri landslið Englands.

Hann hefur verið eftirsóttur af stórliðum um Evrópu síðustu misseri en helsta markmið leikmannsins er að fá spiltíma með meistaraflokki sem fyrst. Það verður áhugavert að fylgjast með Cozier-Duberry á næstu leiktíð.

Kantmaðurinn knái er 19 ára gamall og búinn að gera fjögurra ára samning við Brighton.

Hann er fjórði leikmaðurinn sem gengur í raðir Brighton í sumar eftir Yankuba Minteh, Mats Wieffer og Ibrahim Osman.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.