Newcastle vill kaupa Elanga - Memphis til Corinthians - Barca ætlar að fá Nico Williams - Casemiro og Eriksen mega fara - Kovacic íhugar framtíð sína...
   mið 10. júlí 2024 17:30
Elvar Geir Magnússon
Spinazzola til Napoli (Staðfest)
Spinazzola er 31 árs og hefur leikið 24 landsleiki fyrir Ítalíu.
Spinazzola er 31 árs og hefur leikið 24 landsleiki fyrir Ítalíu.
Mynd: EPA
Vinstri bakvörðurinn Leonardo Spinazzola hefur skrifað undir tveggja ára samning við Napoli en hann kemur til félagsins á frjálsri sölu eftir að samningur hans við Roma rann út.

Spinazzola er 31 árs og hefur leikið 24 landsleiki fyrir Ítalíu en hann varð Evrópumeistari með landsliðinu fyrir nokkrum árum.

Antonio Conte er tekinn við Napoli og er byrjaður að styrkja leikmannahóp sinn.

Félagið hefur tilkynnt að fyrirliðinn Giovanni Di Lorenzo verði áfram hjá félaginu en framtíð hans var talin í óvissu.

Napoli varð Ítalíumeistari í fyrra en hafnaði í tíunda sæti á síðasta tímabili sem er lélegasta titilvörn í sögu ítölsku A-deildarinnar.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner