Fotbolti.net

Leita

Leita í fréttum

Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.

Leitarhamur

Dagsetning

Ef ekkert leitarorð er slegið inn notar síðan dagsetninguna sem einfalt fréttasafnsfilter.

Niðurstöður

Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögnum skilaði 24387 niðurstöðum.

Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.

Niðurstöður

FRÉTTIR06.03.2026, 19:32

Ouahbi tekinn við af Regragui (Staðfest)

Marokkóska fótboltasambandið hefur staðfest stórfelldar breytingar innan karlalandsliðsins þar sem Walid Regragui er hættur störfum eftir tap í úrslitaleik Afríkukeppninnar í janúar.

FRÉTTIR06.03.2026, 16:30

Lingard númer 77 hjá Corinthians (Staðfest)

Jesse Lingard, fyrrum leikmaður Manchester United, hefur gengið í raðir Corinthians í Brasilíu og skrifaði undir samning út tímabilið, þar til í desember. Þessi 33 ára leikmaður hefur verið félagslaus síðan hann yfirgaf Seúl í lok síðasta árs. Hann var orðaður við bandarísku MLS-deildina en er kominn til Sao Paulo þar sem hann mun klæðast treyju 77. <i>„Það var vel tekið á móti mér á flugvellinum. Ástríðufullir stuðningsmenn sungu. Leikmenn tóku mér með opnum örmum og ég er hæstánægður. Ég get ekki beðið eftir því að spila fyrir félagið,"</i> segir Lingard. Lingad gekk í raðir FC Seoul í febrúar 2024 eftir að hafa verið félagslaus í sjö mánuði. Árinu á undan hafði hann verið hjá Nottingham Forest. Lingard á 232 leiki að baki með Manchester United og hefur lyft FA-bikarnum, deildabikarnum og Evrópudeildarbikarnum. Þá hefur hann leikið 32 landsleiki fyrir England. Hjá Corinthians hittir hann aftur gamlan liðsfélaga hjá Manchester United, Memphis Depay. Dorival Júnior, fyrrum landsliðsþjálfari Brasilíu, stýrir liðinu og hefur það hlotið sjö stig úr fyrstu fjórum leikjum tímabilsins.

FRÉTTIR06.03.2026, 13:40

Markús Páll gerir fjögurra ára samning við ÍA (Staðfest)

Markús Páll Ellertsson er genginn til liðs við ÍA, kemur á frjálsri sölu til Skagamanna frá Triestina á Ítalíu. Markús Páll gerir fjögurra ára samning við ÍA. Hann á að baki fjóra leiki með U19 landsliðinu. Sóknarmaðurinn er fæddur árið 2006 og er uppalinn hjá Fram. Eftir tímabilið 2024 samdi hann við ítalska félagið en hefur lítið spilað með aðaliðinu. Markús er yngri bróðir landsliðsmannsins Mikaels Egils sem spilar með Genoa á Ítalíu. Hann kom til móts við nýju liðsfélaga sína í gær en Skagamenn eru í æfingaferð á Tenerife. Markús Páll er fimmti leikmaðurinn sem ÍA krækir í þennan veturinn áður höfðu þeir Böðvar Böðvarsson, Guðmundur Þórarinsson, Gísli Eyjólfsson og Rafael Máni Þrastarson samið við félagið. Markús gæti spilað sinn fyrsta leik með ÍA á sunnudag þegar liðið mætir KR á Tenerife á sunnudag.

FRÉTTIR06.03.2026, 12:28

Sauðkrækingar búnir að finna nýjan þjálfara (Staðfest)

Tindastóll er búið að finna nýjan þjálfara fyrir kvennaliðið eftir að Svanberg Óskarsson lét af störfum í síðasta mánuði. Spánverjinn Juan Carlos Dominguez Requena, eða Domi, er tekinn við liðinu. Domi er Tindastóli vel kunnugur, hann bæði þjálfaði yngri flokka og spilaði með meistaraflokki karla í áraraðir. Í tilkynningu Tindastóls setir að framundan er mikið uppbyggingarstarf og Domi er sagður spenntur fyrir að taka þátt í því.

FRÉTTIR05.03.2026, 21:42

Atli Þór í Fram (Staðfest)

Atli Þór Jónasson er genginn til liðs við Fram á láni frá Víkingi. Hann var eftirsóttur en Fram hefur unnið baráttuna. Atli gekk til liðs við Víking frá HK fyrir síðasta tímabil en hann hafði spilað með HK í Bestu deildinni 2023 og 2024. Hann náði hins vegar ekki að festa sig í sessi hjá Víkingi en hann kom við sögu í ellefu deildarleikjum og skoraði eitt mark.

FRÉTTIR04.03.2026, 19:00

Rúrik í Leikni (Staðfest)

Rúrik Gunnarsson er genginn í raðir Leiknis í Breiðholti og mun spila með liðinu í sumar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu í kvöld.

FRÉTTIR03.03.2026, 16:05

Víkingur fær unglingalandsliðskonu frá Þrótti (Staðfest)

Camily Kristal Silva da Rocha hefur skrifað undir samning til næstu tveggja ára við Víking. Hún kemur í Fossvoginn úr Laugardalnum þar sem hún var hjá Þrótti. Í frétt á heimasíðu Víkings er talað um hana sem ungan og ferskan leikmann sem getur bæði spilað í bakverðinum og á kantinum.

FRÉTTIR03.03.2026, 10:24

Antonio búinn að skrifa undir í Katar (Staðfest) - „Útilokaður eftir bílslysið“

Sóknarmaðurinn Michail Antonio segist hafa þurft að kyngja stoltinu eftir að hafa sloppið lifandi úr bílslysi. Hann býr sig nú undir að spila sinn fyrsta félagsliðaleik í fimmtán mánuði. Antonio er 35 ára og hefur skrifað undir hjá Al-Sailiya í Katar. Antonio var heppinn að láta ekki lífið í slysinu í desember 2024 þegar Ferrari bifreið hans lenti utan vegar og á tré. Hann meiddist á fæti og hefur átt í vandræðum með að finna sér félag. Hann kom af bekknum í þremur leikjum með jamaíska landsliðinu í júní í fyrra.

FRÉTTIR03.03.2026, 09:23

Rafael Victor til Grindavíkur (Staðfest)

Framherjinn Rafael Victor hefur verið kynntur hjá Grindavík en Fótbolti.net greindi frá því í síðasta mánuði að hann væri á leið til félagsins. <i>„Við bjóðum Rafael velkominn til Grindavíkur og hlökkum til að sjá hann í gula búningnum í sumar,"</i> segir í tilkynningu Grindavíkur.

FRÉTTIR02.03.2026, 21:55

Ingó Sig í Reyni (Staðfest)

Ingólfur Sigurðsson mun spila með Reyni Sandgerði í sumar en þetta tilkynnir félagið á heimasvæði sínu á Facebook í dag.

FRÉTTIR02.03.2026, 16:13

Jói Bjarna í Víking (Staðfest)

Jóhannes Kristinn Bjarnason er genginn í raðir Víkings. Hann gengur til liðs við Íslandsmeistarana frá danska félaginu Kolding og skrifar hann undir samning til ársins 2029. Jóhannes Kristinn, sem er 21 árs, er uppalinn hjá KR og fór ungur út til Norrköping í Svíþjóð en sneri svo aftur í Vesturbæinn. Hann lék vel með KR fyrri hluta síðasta tímabils og var seldur til Kolding í Danmörku síðasta sumar. Jóhannes spilaði 12 leiki með Kolding í dönsku B-deildinni og skoraði eitt mark fyrir félagið. Hann á jafnframt 28 leiki að baki fyrir yngri landslið Íslands og hefur skorað í þeim 2 mörk.

FRÉTTIR02.03.2026, 07:00

Davíð Helgi til Keflavíkur (Staðfest)

Varnarmaðurinn Davíð Helgi Aronsson mun leika með Keflavík á láni frá Íslandsmeisturum Víkings á komandi tímabili. Þetta kemur fram í tilkynningu Keflvíkinga.

FRÉTTIR02.03.2026, 06:00

Magni fær tvo frá Þór (Staðfest)

Magni á Grenivík hefur sótt þá Hauk Leo Þórðarson og Pétur Orra Arnarson frá nágrönnum sínum í Þór. Magnamenn greina frá þessu á heimasvæði sínu á Facebook.

FRÉTTIR01.03.2026, 13:24

Bjarni Guðjón heim í Þorpið (Staðfest)

Bjarni Guðjón Brynjólfsson er genginn til liðs við Þór frá FH á láni út komandi tímabil. Bjarni Guðjón er uppalinn hjá Þór og er því mættur aftur í Þorpið. Hann var seldur til Vals haustið 2023 en gekk til liðs við FH um mitt sumar 2024.

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.