Víkingur hefur samið við bandaríska markvörðinn Grace McClellan um að leika með liðinu í Bestu deild kvenna í sumar.
Grace er 25 ára og spilaði á síðasta tímabili með FC KTP í efstu deild í Finnlandi þar sem hún var valin markvörður ársins, en hún spilaði 33 leiki með liðinu og hélt hreinu í 12 leikjum.
Þar á undan spilaði Grace í háskólaboltanum í Bandaríkjunum með Texas A&M og Keiser við góðar orðstír.
Víkingur hafnaði í fimmta sæti í Bestu deild kvenna á síðasta ári.
Knattspyrnudeild Víkings hefur samið við Grace McClellan að leika með liðinu í Bestudeild kvenna í sumar.
— Víkingur Fótbolti (@vikingurfc) March 5, 2026
Grace er 25 ára bandarískur markvörður sem spilaði á síðasta tímabili með FC KTP í efstu deild í Finnlandi þar sem hún var valin markvörður ársins.
Vertu hjartanlega… pic.twitter.com/Sa3hfMAPuQ
Athugasemdir


