Delap, Mainoo, Bastoni, Atubolu, Vicario, Dewsbury-Hall, Guimaraes og fleiri góðir í slúðri dagsins
   mán 02. mars 2026 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Magni fær tvo frá Þór (Staðfest)
Mynd: Magni
Magni á Grenivík hefur sótt þá Hauk Leo Þórðarson og Pétur Orra Arnarson frá nágrönnum sínum í Þór. Magnamenn greina frá þessu á heimasvæði sínu á Facebook.

Haukur Leo er fæddur árið 2007 og þekkir vel til hjá Magna eftir að hafa spilað með liðinu seinni hluta síðasta tímabils.

Miðjumaðurinn kemur á láni út tímabilið eins og varnarmaðurinn Pétur Orri sem kemur einnig frá Þór.

Pétur er einnig fæddur 2007 en hann spilaði með Völsungi á síðasta ári og var áður hjá Kormáki/Hvöt.

Magni spilar í 2. deild í sumar eftir að hafa hafnað í öðru sæti 3. deildar á síðasta ári.


Athugasemdir