Sóknarmaðurinn Michail Antonio segist hafa þurft að kyngja stoltinu eftir að hafa sloppið lifandi úr bílslysi. Hann býr sig nú undir að spila sinn fyrsta félagsliðaleik í fimmtán mánuði.
Antonio er 35 ára og hefur skrifað undir hjá Al-Sailiya í Katar.
Antonio var heppinn að láta ekki lífið í slysinu í desember 2024 þegar Ferrari bifreið hans lenti utan vegar og á tré. Hann meiddist á fæti og hefur átt í vandræðum með að finna sér félag.
Hann kom af bekknum í þremur leikjum með jamaíska landsliðinu í júní í fyrra.
Antonio er 35 ára og hefur skrifað undir hjá Al-Sailiya í Katar.
Antonio var heppinn að láta ekki lífið í slysinu í desember 2024 þegar Ferrari bifreið hans lenti utan vegar og á tré. Hann meiddist á fæti og hefur átt í vandræðum með að finna sér félag.
Hann kom af bekknum í þremur leikjum með jamaíska landsliðinu í júní í fyrra.
Margir sem útilokuðu mig
Antonio yfirgaf West Ham síðasta sumar en hann er markahæsti leikmaður liðsins í sögu ensku úrvalsdeildarinnar með 68 mörk. Graham Potter, þá stjóri Chelsea, vildi ekki halda Antonio og leikmaðurinn segir það hafa verið erfitt að sætta sig við viðskilnaðinn.
„Ég er enn með sömu gæði og ég hafði í ensku úrvalsdeildinni. Samt voru félög og stjórar sem útilokuðu mig vegna þessara meiðsla sem ég hlaut í slysinu," segir Antonio.
„Umboðsmaður minn hafði samband við félög en það var alltaf eins, þau vildu fyrst sjá mig á æfingum. Mér fannst það fyrir neðan mína virðingu. Menn gátu horft á mig spila með Jamaíku, séð hvað ég hafði gert í tíu ár. Ég hefði ekki þurft að koma til reynslu til að fá samning."
„Á endanum sagði umboðsmaðurinn minn að ég þyrfti að kyngja stoltinu til að reyna að sanna mig. Þá endaði ég með því að æfa með Brentford í tvær vikur."
Vildi ekki fara úr rúminu
Ekkert varð af því að Antonio fengi samning hjá Brentford en hann meiddist á kálfa meðan hann æfði hjá félaginu.
„Ég var niðurbrotinn. Ég grét fyrsta daginn og svo vildi ég ekki fara úr rúminu á degi tvö. Ég taldi mig vera kominn aftur þar sem ég vildi vera, aftur í úrvalsdeildina," segir Antonio.
Hann æfði einnig með Leicester og ræddi möguleika á því að gera samning við félagið þar sem hann fengi borgað eftir spiluðum leikjum. Á endanum ákvað hann hinsvegar að stökkva á tilboð frá Katar.
Mason Holgate, liðsfélagi Antonio hjá jamaíska landsliðinu, hafði samband við Antonio en hann spilar með Al-Sailiya og stjóri liðsins hafði spurt hvort hann vissi um sóknarmann á lausu eftir að aðal sóknarmaður liðsins hafði meiðst.
Athugasemdir



