Arsenal orðað við þrjá - Zirkzee vill fara frá Man Utd sem vill fá Murillo - Kinsky fer á láni
   mán 02. mars 2026 19:24
Brynjar Ingi Erluson
McKennie áfram hjá Juventus (Staðfest)
Mynd: EPA
Bandaríski miðjumaðurinn Weston McKennie hefur framlengt samning sinn við ítalska félagið Juventus til fjögurra ára.

McKennie kom til Juventus frá Schalke á láni sumarið 2020 og var keyptur til félagsins nokkrum mánuðum síðar fyrir 18,5 milljónir evra.

Hann átti frábært fyrsta tímabil en meiddist á öðru tímabili sínu og var lánaður frá félaginu til Leeds árið 2023.

Bandaríkjamaðurinn féll með Leeds niður í B-deildina það tímabili og sneri síðan aftur til Juventus þar sem hann hefur spilað lykilhlutverk.

McKennie, sem er 27 ára gamall, hefur skorað átta mörk með Juventus á þessu tímabili og verið einn af þeirra bestu mönnum, en hann hefur nú verið verðlaunaður með nýjum fjögurra ára samningi.

Miðjumaðurinn á 62 A-landsleiki og 11 mörk með bandaríska landsliðinu.



Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey

Stöðutaflan Ítalía Serie A - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Inter 28 22 1 5 64 22 +42 67
2 Milan 28 17 9 2 44 20 +24 60
3 Napoli 28 17 5 6 43 29 +14 56
4 Como 28 14 9 5 46 21 +25 51
5 Roma 28 16 3 9 38 21 +17 51
6 Juventus 28 14 8 6 50 28 +22 50
7 Atalanta 28 12 10 6 39 26 +13 46
8 Bologna 28 11 6 11 37 34 +3 39
9 Sassuolo 28 11 5 12 35 38 -3 38
10 Lazio 28 9 10 9 28 28 0 37
11 Udinese 28 10 6 12 33 41 -8 36
12 Parma 28 8 10 10 20 32 -12 34
13 Genoa 28 7 9 12 34 40 -6 30
14 Cagliari 28 7 9 12 30 38 -8 30
15 Torino 28 8 6 14 28 49 -21 30
16 Lecce 28 7 6 15 20 37 -17 27
17 Fiorentina 28 5 10 13 30 42 -12 25
18 Cremonese 28 5 9 14 22 40 -18 24
19 Verona 28 3 9 16 22 49 -27 18
20 Pisa 28 1 12 15 20 48 -28 15
Athugasemdir
banner
banner