Framherjinn Rafael Victor hefur verið kynntur hjá Grindavík en Fótbolti.net greindi frá því í síðasta mánuði að hann væri á leið til félagsins.
„Við bjóðum Rafael velkominn til Grindavíkur og hlökkum til að sjá hann í gula búningnum í sumar," segir í tilkynningu Grindavíkur.
„Við bjóðum Rafael velkominn til Grindavíkur og hlökkum til að sjá hann í gula búningnum í sumar," segir í tilkynningu Grindavíkur.
Rafael Victor er 30 ára Portúgali sem kom fyrst til Íslands tímabilið 2019 þegar hann lék með Þrótti. Hann lék svo með Hetti 2022, Njarðvík 2023 og svo Þór 2024 og 2025.
Alls á hann að baki 62 mörk í 114 KSÍ leikjum samkvæmt heimasíðu sambandsins. Fjögur markanna skoraði hann í fyrra þegar Þór vann Lengjudeildina, en meiðsli komu í veg fyrir að hann spilaði meira en 14 leiki.
Grindavík ætlar sér greinilega hluti í Lengjudeildinni. Fyrr í vetur var Damir Muminovic sóttur frá Breiðabliki, Hjörvar Daði Arnarsson kom frá ÍBV og Ingi Þór Sigurðsson var keyptur frá ÍA.
Athugasemdir


