Chelsea bætist í kapphlaupið um Nunez - City tilbúið að borga 70 milljónir fyrir Livramento - Liverpool og Real Madrid slást um Schlotterbeck
   mán 02. mars 2026 16:13
Kári Snorrason
Jói Bjarna í Víking (Staðfest)
Jóhannes skrifar undir þriggja ára samning við Íslandsmeistarana.
Jóhannes skrifar undir þriggja ára samning við Íslandsmeistarana.
Mynd: Víkingur R.
Jóhannes Kristinn Bjarnason er genginn í raðir Víkings. Hann gengur til liðs við Íslandsmeistarana frá danska félaginu Kolding og skrifar hann undir samning til ársins 2029.

Jóhannes Kristinn, sem er 21 árs, er uppalinn hjá KR og fór ungur út til Norrköping í Svíþjóð en sneri svo aftur í Vesturbæinn. Hann lék vel með KR fyrri hluta síðasta tímabils og var seldur til Kolding í Danmörku síðasta sumar.

Jóhannes spilaði 12 leiki með Kolding í dönsku B-deildinni og skoraði eitt mark fyrir félagið. Hann á jafnframt 28 leiki að baki fyrir yngri landslið Íslands og hefur skorað í þeim 2 mörk.

„Jói er drífandi leikmaður sem getur notað báðar lappir en er þó hægri fótar, heilt yfir mjög spennandi signing fyrir Víking og gríðarlega efnilegur leikmaður.

Það verður gaman fyrir alla Víkinga að sjá hann í þeim svarta og rauða í sumar,“
er haft eftir Kára Árnasyni, yfirmanni fótboltamála hjá Víkingi, í tilkynningu félagsins.

Athugasemdir
banner
banner