Víkingur Ólafsvík er búinn að styrkja sig með brasilískum framherja sem kemur úr röðum Club Deportivo Boiro sem leikur í fimmtu efstu deild á Spáni.
Sá heitir Allyson Fernando Santos Da Silva og gerir samning sem gildir út tímabilið. Hann er 31 árs gamall og kominn með leikheimild svo hann getur verið með Ólafsvíkingum í Lengjubikarnum á sunnudaginn.
Allyson hefur komið víða við í neðri deildunum á Spáni og hefur einnig reynt fyrir sér í neðri deildunum á Ítalíu.
„Við bjóðum Allyson hjartanlegan velkominn til Ólafsvíkur og væntum mikils af honum í sumar," segir í tilkynningu Víkings.
Víkingur leikur áfram í 2. deild eftir að hafa endað með 28 stig úr 22 umferðum í fyrra.
Athugasemdir


