Ingólfur Sigurðsson mun spila með Reyni Sandgerði í sumar en þetta tilkynnir félagið á heimasvæði sínu á Facebook í dag.
Ingólfur, sem er 33 ára gamall, kemur inn með mikla reynslu, en hann lék síðast með Víkingi Ólafsvík.
Á sínum tíma var hann talinn einn allra efnilegasti fótboltamaður Íslands og samdi meðal annars við hollenska félagið Heerenveen þar sem hann gerði flotta hluti með unglinga- og varaliðinu áður en hann hélt aftur heim.
Hann á 326 meistaraflokksleiki og 86 mörk með Val, KR, Gróttu, KH, KV, Gróttu, Leikni, Fram og Þrótti. Þá spilaði hann einnig með Lyngby í Danmörku.
Ingólfur hefur nú samið um að leika með Reyni Sandgerði sem spilar í 3. deildinni en liðið hafnaði í 5. sæti deildarinnar á síðustu leiktíð.
Vængmaðurinn hefur spilað tvo leiki með Reyni í Lengjubikarnum og skoraði meðal annars tvö mörk í 3-1 sigrinum á Árbæ um helgina, en annað þeirra skoraði hann fyrir aftan miðju.
Athugasemdir


