Marcus Rashford hefur samþykkt að ganga alfarið til liðs við Barcelona - Darwin Nunez eftirsóttur - Rodri er orðaður við Real Madrid
   sun 01. mars 2026 13:24
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Bjarni Guðjón heim í Þorpið (Staðfest)
Mynd: Þór
Bjarni Guðjón Brynjólfsson er genginn til liðs við Þór frá FH á láni út komandi tímabil.

Bjarni Guðjón er uppalinn hjá Þór og er því mættur aftur í Þorpið. Hann var seldur til Vals haustið 2023 en gekk til liðs við FH um mitt sumar 2024.

Hann fagnaði 22 ára afmæli sínu í gær en hann nýtti daginn í ferðalag til Marbella á Spáni þar sem Þórsliðið er í æfingaferð.

Hann hefur leikið 68 leiki fyrir Þór í deild og bikar og skorað í þeim 17 mörk en alls hefur Bjarni leikið 97 leiki í meistaraflokki. Þá hefur hann leikið 14 leiki fyrir yngri landslið Íslands og skorað eitt mark.


Athugasemdir
banner
banner
banner