Inter og Juve vilja Alisson - Man Utd vill annan Bruno - Liverpool og Arsenal fylgjast með Bastoni
   mið 04. mars 2026 07:00
Ívan Guðjón Baldursson
Höttur fær annan erlendan markmann og tvo Spánverja (Staðfest)
Mynd: Höttur
Höttur á Egillsstöðum hefur gengið frá félagaskiptum fyrir þrjá leikmenn sem munu spila með liðinu í 3. deildinni í sumar.

Pólski markvörðurinn Filip Kramarz mun berjast um markmannsstöðuna hjá Hetti, en hann er annar erlendi markmaðurinn sem Höttur semur við fyrir tímabilið.

Höttur hafði einnig samið við hinn víðförla Viorel Boian sem var kynntur sem nýr leikmaður félagsins í janúar, en hætt hefur verið við félagaskiptin vegna vegabréfsmála.

Spánverjarnir Pablo Ruiz og Sergi Valls eru einnig fluttir á Egilsstaði.

Pablo er 25 ára fjölhæfur sóknarleikmaður sem býr yfir góðum hraða og reynslu af því að klára færi. Hann hefur stærstan hluta ferilsins leikið í neðri deildum spænska boltans en einnig reynt fyrir sér í efstu deild í Andorra.

Sergi er hafsent sem kemur úr röðum Manresa á Spáni. Hann er 30 ára gamall og þykir vel spilandi leikmaður þar sem hann er góður með boltann í löppunum.

Auk þess að spila sem miðvörður getur Sergi einnig leyst hlutverk djúps miðjumanns af hólmi og gæti reynst afar mikilvægur í sumar. Hann kemur með nauðsynlega reynslu inn í ungan leikmannahóp Hattar þar sem meirihluti leikmanna er um eða undir tvítugt.

Sergi verður því í einskonar leiðtogahlutverki hjá Hetti en hann kemur til félagsins í gegnum umboðsskrifstofuna Áfram Football.


Athugasemdir
banner