Inter og Juve vilja Alisson - Man Utd vill annan Bruno - Liverpool og Arsenal fylgjast með Bastoni
   þri 03. mars 2026 16:05
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Heimild: Víkingur 
Víkingur fær unglingalandsliðskonu frá Þrótti (Staðfest)
Kvenaboltinn
Mynd: Víkingur
Camily Kristal Silva da Rocha hefur skrifað undir samning til næstu tveggja ára við Víking.

Hún kemur í Fossvoginn úr Laugardalnum þar sem hún var hjá Þrótti.

Í frétt á heimasíðu Víkings er talað um hana sem ungan og ferskan leikmann sem getur bæði spilað í bakverðinum og á kantinum.

Camily er fædd árið 2008 og hefur skorað eitt mark í 13 leikjum fyrir yngri lndslið Íslands. Hún hefur spilað 23 meistaraflokksleiki fyrir Þrótt og venslaliðið KÞ.

„Við erum afar ánægð að fá Camily til okkar, hún er með ferska fætur, kröftug og hæfileikarík og erum við spennt að sjá hana taka næstu skref í sínum ferli hjá okkur í Víkinni," segir Einar Guðnason þjálfari Víkings.

Komnar
Helena Ósk Hálfdánardóttir frá Val
Jasmín Erla Ingadóttir frá Val
Elísa Birta Káradóttir frá HK
Þórhildur Þórhallsdóttir frá Fylki
Camilly Kristal Silva Da Rocha frá Þrótti
Hrafnhildur Hjaltalín frá Aftureldingu

Farnar
Linda Líf Boama til Kristianstad
Gígja Valgerður Harðardóttir
Eva Ýr Helgadóttir hætt
Ashley Clark til Montpellier
Júlía Ruth Thasaphong til Grindavíkur/Njarðvíkur
Athugasemdir
banner
banner