Man City nálægt því að krækja í Anderson - Liverpool vill Diomande til að fylla skarð Salah
   fös 06. mars 2026 19:32
Ívan Guðjón Baldursson
Ouahbi tekinn við af Regragui (Staðfest)
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Marokkóska fótboltasambandið hefur staðfest stórfelldar breytingar innan karlalandsliðsins þar sem Walid Regragui er hættur störfum eftir tap í úrslitaleik Afríkukeppninnar í janúar.

Regragui lætur af störfum aðeins rétt rúmum þremur mánuðum fyrir upphaf HM 2026 í Norður-Ameríku.

Mohamed Ouahbi tekur við eftir að hafa gert frábæra hluti með U20 landslið Marokkó sem hann leiddi til sigurs á HM sem haldið var í Síle í fyrra.

João Sacramento, fyrrum aðstoðarþjálfari hjá PSG og AS Roma, tekur við sem aðstoðarþjálfari marokkóska landsliðsins.

Regragui hafði verið við stjórnvölinn hjá Marokkó í tæplega fjögur ár og náði hann frábærum árangri á þeim tíma. Marokkó endaði afar óvænt í fjórða sæti á síðasta heimsmeistaramóti og tapaði svo úrslitaleik Afríkukeppninnar naumlega í janúar.

   06.03.2026 18:45
Iniesta í viðræðum við marokkóska landsliðið



Athugasemdir
banner