Fotbolti.net

Leita

Leita í fréttum

Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.

Leitarhamur

Dagsetning

Ef ekkert leitarorð er slegið inn notar síðan dagsetninguna sem einfalt fréttasafnsfilter.

Niðurstöður

Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögnum skilaði 24430 niðurstöðum.

Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.

Niðurstöður

FRÉTTIR01.02.2024, 18:37

Adam Wharton í Crystal Palace (Staðfest)

Miðjumaðurinn Adam Wharton er genginn í raðir Crystal Palace frá Blackburn fyrir 22 milljónir punda. Palace var að staðfesta skiptin núna rétt í þessu.

FRÉTTIR01.02.2024, 18:17

Ekitike til Frankfurt á láni (Staðfest)

<p>Franski framherjinn Hugo Ekitike er genginn til liðs við Frankfurt frá PSG á láni út tímabilið. Þýska félagið getur keypt hann fyrir 30 milljónir evra í sumar.</p>

FRÉTTIR01.02.2024, 17:54

Rúnar Alex í FC Kaupmannahöfn (Staðfest)

Markvörðurinn Rúnar Alex Rúnarsson hefur skrifað undir samning við FC Kaupmannahöfn sem gildir til ársins 2027. Hann yfirgaf Arsenal fyrr í dag og kemur til FCK á frjálsri sölu.

FRÉTTIR01.02.2024, 17:30

Yerry Mina til Cagliari (Staðfest)

Kólumbíski miðvörðurinn Yerry Mina hefur fengið sig lausan frá Fiorentina og er genginn í raðir Cagliari á samningi út þetta tímabili. Hann skrifar undir samning sem virkar þannig að félagið getur framlengt samninginn í ár til viðbótar ef vel gengur.

FRÉTTIR01.02.2024, 17:21

Aston Villa kaupir Sousa frá Arsenal - Lánaður til Plymouth (Staðfest)

Aston Villa hefur gengið frá kaupum á Lino Sousa sem er nítján ára vinstri bakvörður. Sousa kemur frá Arsenal. Hann er fæddur í Portúgal en hefur leikið með yngri landsliðum Englands. Hann getur ennþá kosið að spila fyrir Portúgal ef sá möguleiki kemur upp í framtíðinni. Hann hóf ferilinn á Englandi hjá WBA en kom til Arsenal árið 2022. Hann var í leikmannahópnum þegar Arsenal mætti Brentford á síðasta tímabili.

FRÉTTIR01.02.2024, 17:20

Isak Hansen-Aaröen frá Man Utd til Werder Bremen (Staðfest)

Werder Bremen hefur staðfest það að norski miðjumaðurinn Isak Hansen-Aaröen sé genginn í raðir félagsins frá Manchester United. Ekki er um lánssamning að ræða, heldur kaup. Ekki kemur fram hvað kaupverðið er.

FRÉTTIR01.02.2024, 16:43

Zaragoza mættur til Bayern (Staðfest) - Átti að koma í sumar

Bayern Munchen tilkynnti í dag að spænski kantmaðurinn Bryan Zaragoza væri mættur til félagsins. Félagið kaupir hann frá Granada á Spáni en upprunalega átti hann að koma til Bayern næsta sumar. Félagaskiptin eru sett þannig upp að hann kemur fyrst á láni en svo kaupir Bayern hann í sumar.

FRÉTTIR01.02.2024, 15:43

Newcastle kaupir ungstirni frá Man City (Staðfest)

Newcastle hefur gengið frá kaupum á hinum 18 ára gamla Alfie Harrison. Harrison kemur til félagsins frá Manchester City og er kaupverðið óuppgefið. Slúðurmiðlar hafa fjallað um að kaupverðið geti verið um 3,5 milljónir punda. Harrison er miðjumaður en hefur þrátt fyrir það verið líkt við Erling Haaland. Hann þykir líkjast honum í útliti og er sömuleiðis öflugur fyrir framan markið. Hann skrifar undir samning sem gildir fram á sumarið 2026. Hann heillaði með unglingaliðum City en hefur ekki spilað fyrir aðalliðið.

FRÉTTIR01.02.2024, 15:19

Swansea fær Sagoe lánaðan frá Arsenal (Staðfest)

Arsenal hefur lánað Charles Sagoe Jr til Swansea í Championship-deildinni. Fyrir hjá Swansea er annar lánsmaður frá Arsenal, Charlie Patino. Sagoe er nítján ára framherji og lék sinn fyrsta aðalliðsleik fyrir Arsenal í deildabikarleik gegn Brentford í september á síðasta ári.

FRÉTTIR01.02.2024, 15:06

Afturelding fær miðvörð frá Brann (Staðfest)

Fótbolti.net greindi frá því fyrir helgi að Aron Jónsson væri að ganga í raðir Aftureldingar frá norska félaginu Brann. Nú hafa félagaskiptin verið staðfest. Aron er nítján ára miðvörður og á að baki tvo leiki fyrir U19 landslið Íslands. Hann hefur einnig leikið fyrir unglingalandslið Noregs.

FRÉTTIR01.02.2024, 14:49

Ivan Toney fer hvergi (Staðfest)

Thomas Frank, stjóri Brentford, sat í dag fyrir svörum á fréttamannafundi en framundan er leikur gegn Manchester City á mánudag. Ivan Toney hefur verið orðaður í burtu í glugganum en líkurnar á því að hann færi hafa farið minnkandi síðustu daga. Þær eru nú orðnar að engu.

FRÉTTIR01.02.2024, 14:39

Rúnar Alex farinn frá Arsenal (Staðfest)

Rúnar Alex Rúnarsson hefur náð samkomulagi við Arsenal um riftun á samningi sínum við félagið. Þetta kemur fram í tilkynningu Arsenal. Rúnar Alex átti hálft ár eftir af samningi sínum. Hann var á láni hjá Cardiff en velska félagið er að fá inn annan markvörð og lánssamningnum við Arsenal var svo rift. Rúnar Alex kom frá Dijon í september 2020 og kom við sögu í sex leikjum á fyrsta tímabilinu hjá Arsenal. Í þeim hélt hann þrisvar sinnum hreinu.

FRÉTTIR01.02.2024, 12:52

Williams meiddur og Liverpool kallar hann til baka (Staðfest)

Liverpool tilkynnti rétt í þessu að búið væri að kalla Rhys Williams til baka úr láni frá Port Vale. Varnarmaðurinn var lánaður þann 16. janúar en er mættur til baka vegna meiðsla og verður hjá Liverpool í endurhæfingu.

FRÉTTIR01.02.2024, 12:36

Bolton kaupir framherja (Staðfest) - Aukin samkeppni fyrir Jón Daða

Bolton hefur fest kaup á framherjanum Aaron Collins sem kemur frá Bristol Rovers. Kaupverðið er óuppgefið. Collins var á síðasta tímabili besti leikmaður ensku C-deildarinnar þegar hann skoraði sextán mörk fyrir Rovers. Collins er 26 ára Walesverji. Á þessu tímabili hefur hann skorað þrjú mörk í 27 deildarleikjum. Hann er þriðji leikmaðurinn sem Bolton kaupir í glugganum og skrifar hann undir samning fram á sumarið 2027. Fyrir hafði Bolton fengið Calvin Ramsay frá Liverpool á láni og Nathan Ogbeta frá Swansea.

FRÉTTIR01.02.2024, 12:00

Sunderland selur Pritchard og kaupir Mundle (Staðfest)

Sunderland hefur fest kaup á Romaine Mundle og er hann genginn í raðir enska félagsins. Sunderland kaupir hann frá Standard Liege og greiðir Sunderland 2 milljónir punda fyrir vængmanninn. Mundle er tvítugur Englendingur sem uppalinn er hjá Tottenham en hélt til Belgíu í fyrra. Hann skrifaði undir fjögurra ára samning við Standard síðasta sumar. Hann skrifar undir fjögurra og hálfs árs samning við Sunderland. Sunderland var ekki lengi að tilkynna þennan nýjasta leikmann félagsins eftir að Alex Pritchard var seldur til Birmingham.

FRÉTTIR01.02.2024, 11:17

Morgan Rogers til Aston Villa (Staðfest)

Aston Villa hefur gengið frá kaupum á Morgan Rogers frá Middlesbrough. Villa greiðir samtals um 15 milljónir punda fyrir leikmanninn ef öll ákvæði virkjast. Rogers fær treyju númer 27 hjá Villa. Rogers er 21 árs og skoraði hann sjö mörk og lagði upp átta hjá Boro á þessu tímabili. Rogers kannast vel við sig í Miðlöndum en hann hóf feril sinn hjá WBA áður en hann fór til Manchester City.

FRÉTTIR01.02.2024, 10:55

Axel Óskar riftir við Örebro (Staðfest)

Axel Óskar Andrésson hefur rift samningi sínum við sænska félagið Örebro. Félagið tilkynnti þetta á samfélagsmiðlum í dag. Axel var leikmaður félagsins í tvö tímabil, kom frá Riga í Lettlandi árið 2022 og var samningsbundinn út komandi tímabil. Axel sagði frá því í vetur að hugur hans stefndi á stærri deild, stað þar sem hann gæti verið nær því að vera valinn í landsliðið ef hann spilaði vel.

FRÉTTIR01.02.2024, 10:40

Bayern kaupir ungstirni frá AIK (Staðfest)

Þýska stórveldið Bayern München er búið að ganga frá kaupum á Jonah Kusi-Asare. Kusi-Asare er 16 ára gamall sóknarmaður en hann hefur þrátt fyrir ungan aldur spilað fjóra leiki í sænsku úrvalsdeildinni.

FRÉTTIR01.02.2024, 10:22

Arsenal selur ungan miðjumann til Berlínar (Staðfest)

Arsenal hefur selt miðjumanninn Bradley Ibrahim til þýska félagsins Hertha Berlin. Kaupverðið er óuppgefið. Ibrahim hefur ekki leikið aðalliðsleik fyrir Arsenal til þessa. Hann er nítján ára Englendingur sem fæddur er í London og lék á sínum tíma tvo leiki fyrir U18 landsliðið.

FRÉTTIR01.02.2024, 09:32

Brighton lánar Dahoud til Stuttgart (Staðfest)

Mahmoud Dahoud miðjumaður Brighton hefur gengið í raðir þýska félagsins Stuttgart á láni þar til í lok tímabilsins. Þessi 28 ára leikmaður kom til Brighton frá Borussia Dortmund síðasa sumar og hefur spilað fjórtán leiki í öllum keppnum fyrir félagið. Hjá Stuttgart hittir hann Deniz Undav sem er einnig á láni frá Brighton og hefur skorað tólf mörk í þýsku Bundesligunni á tímabilinu. David Weir hjá Brighton segir á heimasíðu félagsins að þetta gefi Dahoud tækifæri til að spila reglulega fyrir lið sem sé að gera góða hluti í þýsku deildinni. Stuttgart situr í þriðja sæti.

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.