Fotbolti.net
01.02.24 - 16:43
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Í samstarfi við styrktaraðila

Zaragoza mættur til Bayern (Staðfest) - Átti að koma í sumar

Zaragoza mættur til Bayern (Staðfest) - Átti að koma í sumar
Canon

Mynd: Bayern Munchen

Bayern Munchen tilkynnti í dag að spænski kantmaðurinn Bryan Zaragoza væri mættur til félagsins.

Félagið kaupir hann frá Granada á Spáni en upprunalega átti hann að koma til Bayern næsta sumar. Félagaskiptin eru sett þannig upp að hann kemur fyrst á láni en svo kaupir Bayern hann í sumar.
Hann er 22 ára Spánverji og lék sinn fyrsta landsleik í október. Hann skoraði ellefu mörk í 52 deildarleikjm fyrir Granada.

Kaupverðið er talið geta endað í 20 milljónum evra ef Zaragoza og Bayern gengur vel næstu árin.

Bayern er sem stendur í 2. sæti þýsku Bundesliga. Liðið er í eltingaleik við Bayer Leverkusen sem hefur ekki tapað leik á tímabilinu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.