Fótbolti.net greindi frá því fyrir helgi að Aron Jónsson væri að ganga í raðir Aftureldingar frá norska félaginu Brann. Nú hafa félagaskiptin verið staðfest.
Aron er nítján ára miðvörður og á að baki tvo leiki fyrir U19 landslið Íslands. Hann hefur einnig leikið fyrir unglingalandslið Noregs.
Aron er nítján ára miðvörður og á að baki tvo leiki fyrir U19 landslið Íslands. Hann hefur einnig leikið fyrir unglingalandslið Noregs.
Úr tilkynningu Aftureldingar
Aron hefur búið í Noregi frá sex ára aldri og undanfarin ár verið á mála hjá stórliði Brann. Síðastliðið tímabil var hann fastamaður í varaliði Brann sem leikur í norsku C-deildinni en árið áður vann hann D-deildina með liðinu. Aron á einnig einn leik að baki með aðalliði Brann. Aron æfði með Aftureldingu í byrjun árs og skoraði í 3-1 sigri á HK í Þungavigtarbikarnum en hann er nú formlega genginn til liðs við Aftureldingu.
„Mér líst mjög vel á að vera kominn í Aftureldingu. Hópurinn góður og flott þjálfarateymi. Afturelding er að spila skemmtilegan bolta sem mér finnst ég passa vel inn í. Markmiðin hjá Aftureldingu eru skýr fyrir sumarið og ég hef fulla trú á okkur. Fyrstu dagarnir í Mosó hafa verið viðburðaríkir. Nóg að gera og mikið að segja sig inn í. Hér hefur verið tekið mjög vel á móti mér. Að lokum bindi ég miklar vonir fyrir góðri stemningu á leikjunum í sumar og vona að sem flestir mæti á leikina hjá okkur. Áfram Afturelding," sagði Aron.
„Aron stóð sig vel þegar hann var hjá okkur í byrjun árs og það er fagnaðarefni að hann sé genginn til liðs við Aftureldingu. Aron er með fína leikreynslu að baki í meistaraflokki þrátt fyrir ungan aldur og hann hefur alla burði til að taka áfram miklum framförum hér í Mosfellsbæ," sagði þjálfarinn Magnús Már Einarsson.
„Aron stóð sig vel þegar hann var hjá okkur í byrjun árs og það er fagnaðarefni að hann sé genginn til liðs við Aftureldingu. Aron er með fína leikreynslu að baki í meistaraflokki þrátt fyrir ungan aldur og hann hefur alla burði til að taka áfram miklum framförum hér í Mosfellsbæ.”
Athugasemdir