
Williams meiddur og Liverpool kallar hann til baka (Staðfest)


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Liverpool tilkynnti rétt í þessu að búið væri að kalla Rhys Williams til baka úr láni frá Port Vale.
Varnarmaðurinn var lánaður þann 16. janúar en er mættur til baka vegna meiðsla og verður hjá Liverpool í endurhæfingu.
Varnarmaðurinn var lánaður þann 16. janúar en er mættur til baka vegna meiðsla og verður hjá Liverpool í endurhæfingu.
Williams var fyrri hluta tímabilsins á láni hjá Aberdeen en spilaði einungis einn leik. Liverpool vildi færa hann til á miðju tímabili.
Hann er 22 ára og á tvö og hálft ár eftir af samningi sínum við Liverpool. Ekki er tekið fram hvað sé að hrjá Williams.
Hann er 22 ára og á tvö og hálft ár eftir af samningi sínum við Liverpool. Ekki er tekið fram hvað sé að hrjá Williams.




