Bayern kaupir ungstirni frá AIK (Staðfest)

Mynd: Bayern Munchen

Mynd: Bayern Munchen
Þýska stórveldið Bayern München er búið að ganga frá kaupum á Jonah Kusi-Asare.
Kusi-Asare er 16 ára gamall sóknarmaður en hann hefur þrátt fyrir ungan aldur spilað fjóra leiki í sænsku úrvalsdeildinni.

„Hann hefur allan pakkann. Hann er tæknilega mjög góður, snöggur, hávaxinn og sterkur. Við erum mjög glaðir að hann valdi Bayern fram yfir aðra kosti," sagði Christoph Freund sem er yfirmaður fótboltamála hjá Bayern. Þýska félagið hefur verið með augastað á Kusi-Asare undanfarin þrjú ár.
Kusi-Asare varð í ágúst yngsti leikmaður í sögu AIK til að spila leik þegar hann kom inn á 24 dögum eftir að hann varð 16 ára.
Fabrizio Romano segir að Bayern greiði um 6,5 milljónir evra fyrir leikmanninn. Hann mun byrja feril sinn hjá Bayern í U19 ára liðinu.