Ivan Toney fer hvergi (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Thomas Frank, stjóri Brentford, sat í dag fyrir svörum á fréttamannafundi en framundan er leikur gegn Manchester City á mánudag.
Ivan Toney hefur verið orðaður í burtu í glugganum en líkurnar á því að hann færi hafa farið minnkandi síðustu daga. Þær eru nú orðnar að engu.

„Þetta verða glænýjar risafréttir fyrir ykkur - Ivan verður áfram," sagði Frank á fundinum í dag. Bæði Arsenal og Chelsea voru orðuð við framherjann í glugganum.
„Á þriðjudag voru það 99,9% líkur og nú eru það 100% líkur á að hann verði áfram," sagði sá danski.
Toney hefur skorað tvö mörk í tveimur leikjum eftir að hann kom til baka úr keppnisbanni.
Frank var spurður hvort að það kæmi einhver leikmaður til Brentford í dag. „Ólíklegt að við gerum eitthvað núna - 5 prósent líkur," sagði Frank.