Fotbolti.net
01.02.24 - 12:36
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Í samstarfi við styrktaraðila

Bolton kaupir framherja (Staðfest) - Aukin samkeppni fyrir Jón Daða

Bolton kaupir framherja (Staðfest) - Aukin samkeppni fyrir Jón Daða
Canon

Mynd: Bolton

Bolton hefur fest kaup á framherjanum Aaron Collins sem kemur frá Bristol Rovers. Kaupverðið er óuppgefið.

Collins var á síðasta tímabili besti leikmaður ensku C-deildarinnar þegar hann skoraði sextán mörk fyrir Rovers. Collins er 26 ára Walesverji. Á þessu tímabili hefur hann skorað þrjú mörk í 27 deildarleikjum.

Hann er þriðji leikmaðurinn sem Bolton kaupir í glugganum og skrifar hann undir samning fram á sumarið 2027. Fyrir hafði Bolton fengið Calvin Ramsay frá Liverpool á láni og Nathan Ogbeta frá Swansea.
Bolton er í 2. sæti C-deildarinnar á meðan Bristol Rovers er í 11. sæti. Hjá Bolton hittir Collins fyrir Jón Daða Böðvarsson.

Dion Charles , Victor Adeboyejo og Randell Williams eru þeir framherjar sem hafa spilað mest hjá Bolton í deildinni og næstur á eftir þeim er Jón Daði.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.