Fotbolti.net
01.02.24 - 17:20
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Í samstarfi við styrktaraðila

Isak Hansen-Aaröen frá Man Utd til Werder Bremen (Staðfest)

Isak Hansen-Aaröen.

Isak Hansen-Aaröen.

Canon

Mynd: Werder Bremen

Werder Bremen hefur staðfest það að norski miðjumaðurinn Isak Hansen-Aaröen sé genginn í raðir félagsins frá Manchester United.

Ekki er um lánssamning að ræða, heldur kaup. Ekki kemur fram hvað kaupverðið er.
Hansen-Aaröen er 19 ára gamall og hefur verið hjá Man Utd frá 2020 en hann kom til félagsins frá Tromsö. Hann varð á sínum tíma yngsti leikmaðurinn í sögu Tromsö til að spila leik fyrir félagið er hann kom inn á 15 ára gamall í deildarleik gegn Kongsvinger.

Hann spilaði ekki aðalliðsleik fyrir Man Utd en þykir samt sem áður afskaplega spennandi leikmaður.

Samningur Hansen-Aaröen við Man Utd átti að renna út í sumar og var ekki talið líklegt að hann myndi skrifa undir nýjan samning. Því ákvað félagið að selja hann núna.

Werder Bremen er í níunda sæti þýsku úrvalsdeildarinnar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.