Aston Villa kaupir Sousa frá Arsenal - Lánaður til Plymouth (Staðfest)

Mynd: Aston Villa

Mynd: Aston Villa
Aston Villa hefur gengið frá kaupum á Lino Sousa sem er nítján ára vinstri bakvörður. Sousa kemur frá Arsenal.
Hann er fæddur í Portúgal en hefur leikið með yngri landsliðum Englands. Hann getur ennþá kosið að spila fyrir Portúgal ef sá möguleiki kemur upp í framtíðinni.
Hann hóf ferilinn á Englandi hjá WBA en kom til Arsenal árið 2022. Hann var í leikmannahópnum þegar Arsenal mætti Brentford á síðasta tímabili.

Aston Villa kaupir hann og lánar hann strax til Plymouth út tímabilið. Hann getur því fengið tíma með aðalliðinu þar og sótt sér leikreynslu í meistaraflokksbolta.
Samningur Sousa við Villa gildir út tímabilið 2028. Rangers, Galatasaray og Juventus höfðu einnig áhuga á kappanum.
Aston Villa er einnig að krækja í 16 ára Keilan Quinn frá grönnum sínum í WBA. Quinn er miðjumaður sem talinn er kosta um eina milljón punda.
Fyrr í dag gekk Villa frá kaupanum á Morgan Rogers frá Middlesbrough.