
Ekitike til Frankfurt á láni (Staðfest)


Mynd: Frankfurt


Mynd: Frankfurt
Franski framherjinn Hugo Ekitike er genginn til liðs við Frankfurt frá PSG á láni út tímabilið. Þýska félagið getur keypt hann fyrir 30 milljónir evra í sumar.
Þessi 21 árs gamli framherji gekk til liðs við PSG á láni frá Reims og spilaði 25 leiki í frönsku deildinni og skoraði þrjú mörk á síðasta tímabili.
Félagið keypti hann síðan í sumar en hann hefur aðeins komið við sögu í einum leik í deildinni.
„Hugo er ungur leikmaður sem hefur þegar sannað að hann er gríðarlega efnilegur. Við vildum fá hann í sumar og gáfumst ekki upp. Við erum ánægðir að þetta gekk upp miðað við fjárhagsaðstæðurnar okkar, við munum að sjálfsögðu gefa honum tíma til að aðlagast," sagði Markus Krösche, yfirmaður fótboltamála hjá Frankfurt.
Hu? ...GO! ??????#SGE pic.twitter.com/zSIoT6UZj2
— Eintracht Frankfurt (@Eintracht) February 1, 2024




