Fotbolti.net
01.02.24 - 15:43
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Í samstarfi við styrktaraðila

Newcastle kaupir ungstirni frá Man City (Staðfest)

Newcastle kaupir ungstirni frá Man City (Staðfest)
Canon

Mynd: Newcastle

Newcastle hefur gengið frá kaupum á hinum 18 ára gamla Alfie Harrison. Harrison kemur til félagsins frá Manchester City og er kaupverðið óuppgefið.

Slúðurmiðlar hafa fjallað um að kaupverðið geti verið um 3,5 milljónir punda.

Harrison er miðjumaður en hefur þrátt fyrir það verið líkt við Erling Haaland. Hann þykir líkjast honum í útliti og er sömuleiðis öflugur fyrir framan markið.

Hann skrifar undir samning sem gildir fram á sumarið 2026. Hann heillaði með unglingaliðum City en hefur ekki spilað fyrir aðalliðið.
„Ef ég var krakki núna, horfandi á mig að semja við Newcastle United, þá væri ég að upplifa draum. Ég hlakka mikið til komandi tíma og hvernig ég get tekið framförum," sagði Harrison við undirskrift.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.