Fotbolti.net
01.02.24 - 14:39
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Í samstarfi við styrktaraðila

Rúnar Alex farinn frá Arsenal (Staðfest)

Rúnar Alex farinn frá Arsenal (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Rúnar Alex Rúnarsson hefur náð samkomulagi við Arsenal um riftun á samningi sínum við félagið. Þetta kemur fram í tilkynningu Arsenal. Rúnar Alex átti hálft ár eftir af samningi sínum.

Hann var á láni hjá Cardiff en velska félagið er að fá inn annan markvörð og lánssamningnum við Arsenal var svo rift.

Rúnar Alex kom frá Dijon í september 2020 og kom við sögu í sex leikjum á fyrsta tímabilinu hjá Arsenal. Í þeim hélt hann þrisvar sinnum hreinu.
Rúnar Alex á leið til FCK
TENGT EFNI

Rúnar Alex á leið til FCK

Hann er 28 ára og hefur verið á láni síðustu tímabil. Fyrst fór hann til OH Leuven í Belgíu, næst til Alanayspor í Tyrklandi og svo síðast Cardiff.

Arsenal segir ekki frá því í tilkynningu sinni en Rúnar Alex er á leið til dönsku meistaranna í FCK.

Þar skrifar hann undir þriggja og hálfs árs samning.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.