Fotbolti.net

Leita

Leita í fréttum

Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.

Leitarhamur

Dagsetning

Ef ekkert leitarorð er slegið inn notar síðan dagsetninguna sem einfalt fréttasafnsfilter.

Niðurstöður

Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögn og texta skilaði 25161 niðurstöðum.

Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.

Niðurstöður

FRÉTTIR14.11.2023, 12:07

Þorsteinn Aron til Vals frá Fulham (Staðfest)

Valur tilkynnti í dag um komu Þorsteins Arons Antonssonar sem gengur í raðir félagsins eftir að hafa spilað með Selfossi í Lengjudeildinni í sumar. Hann kemur til Vals frá Fulham en hann var á láni á Selfossi frá enska félaginu. Þorsteinn Aron er unglingalandsliðmaður, miðvörður sem var árið 2020 valinn efnilegasti leikmaður 2. deildar og var hann keyptur til Fulham þá um haustið.

FRÉTTIR14.11.2023, 11:37

Bayern kaupir Nestory Irankunda (Staðfest)

Þýska stórveldið Bayern München hefur gengið frá kaupum á ástralska ungstirninu Nestory Irankunda. Hann kemur til Bayern frá Adelaide United í heimalandi sínu.

FRÉTTIR13.11.2023, 18:30

Marcelino tekinn við Villarreal (Staðfest)

Villarreal er búið að staðfesta ráðningu á Marcelino í þjálfarastarfið hjá félaginu og gerir hann samning sem gildir í tvö og hálft ár, eða til sumarsins 2026.

FRÉTTIR13.11.2023, 17:04

Jakobína í Breiðablik (Staðfest)

Breiðablik hefur fengið liðsstyrk fyrir komandi tímabil í Bestu deildinni því Jakobína Hjörvarsdóttir hefur skrifað undir þriggja ára samning við félagið. Jakobína kemur frá Þór/KA þar sem hún hefur leikið allan sinn meistaraflokksferil.

FRÉTTIR13.11.2023, 16:30

Eiður Atli framlengir við HK (Staðfest) - Leiknir hafði áhuga

Eiður Atli Rúnarsson hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning við HK. Fyrri samningur var að renna út. <i>„Eiður er fæddur árið 2002 og er uppalinn HK-ingur. Eiður spilaði 17 leiki í Bestu Deild karla með félaginu í sumar auk þess var hann einnig í æfingahóp U-21 landsliðs Íslands fyrr á árinu,"</I> segir í tilkynningu HK.

FRÉTTIR13.11.2023, 10:56

Fabregas þjálfar Como til bráðabirgða (Staðfest)

Como 1907, félag í Seríu B á Ítalíu, tilkynnti í morgun að Moreno Longo væri ekki lengur þjálfari liðsins. Leit stendur yfir að næsta þjálfara liðsins en til bráðabirgða mun Cesc Fabregas stýra liðinu. Fabregas tók við sem þjálfari unglingaliðsins í sumar þegar hann lagði skóna á hilluna.

FRÉTTIR11.11.2023, 09:30

Rasmus kveður Aftureldingu (Staðfest)

Rasmus Christiansen er búinn að kveðja liðsfélaga sína í Aftureldingu og heldur á ný mið. Hann staðfesti tíðindin í samtali við Fótbolta.net í gær. Rasmus skrifaði undir eins árs samning við Aftureldingu síðasta vetur og er sá samningur að renna út. Rasmus var í stóru hlutverki hjá Aftureldingu sem var nálægt því að vinna sæti í Bestu deildinni, liðið endaði í 2. sæti Lengjudeildarinnar og tapaði í úrslitaleik við Vestra um sæti í Bestu.

FRÉTTIR10.11.2023, 16:47

Kristján Atli yfirgefur Þór (Staðfest)

Kristján Atli Marteinsson samdi síðasta vetur við Þór og lék með liðinu á liðnu tímabili. Hann skrifaði undir samning út tímabilið, sá samningur er að renna út og er orðið ljóst að hann verður ekki áfram.

FRÉTTIR10.11.2023, 15:09

Unnar Steinn framlengir við Fylki (Staðfest)

Fylkir tilkynnti í dag að Unnar Steinn Ingvarsson væri búinn að framlengja samning sinn við Fylki. Unnar, sem er fjölhæfur miðjumaður, skrifar undir samning sem gildir út tímabilið 2026. Hann getur einnig leyst stöðu bakvarðar.

FRÉTTIR10.11.2023, 08:30

Fjórir framlengja við Leikni (Staðfest)

Patryk Hryniewicki, Marko Zivkovic og Ósvald Jarl Traustason hafa allir framlengt samninga sína við Leikni og þá er ljóst að Omar Sowe verður áfram í herbúðum félagsins eftir að það virkjaði ákvæði í samningi hans.

FRÉTTIR10.11.2023, 06:00

Þjálfari Róberts Orra rekinn (Staðfest)

Kanadíska félagið Montreal hefur sagt skilið við argentínska þjálfarann Hernan Losada, en þetta kom fram í tilkynningu félagsins í gær.

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.