Armstrong og Gomes til Wolves (Staðfest)
Botnlið Wolves tókst að fá tvo leikmenn til félagsins á lokametrum félagaskiptagluggans en Adam Armstrong og Angel Gomes voru kynntir hjá félaginu í kvöld.
Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.
Niðurstöður
Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögnum skilaði 24387 niðurstöðum.
Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.
Botnlið Wolves tókst að fá tvo leikmenn til félagsins á lokametrum félagaskiptagluggans en Adam Armstrong og Angel Gomes voru kynntir hjá félaginu í kvöld.
Danska úrvalsdeildarfélagið Viborg tilkynnti komu Ísaks Andra Sigurgeirssonar frá Norrköping í kvöld, en hann kemur á láni út tímabilið með kaupmöguleika.
Everton gekk í kvöld frá lánssamningi við Chelsea um enska sóknartengiliðinn Tyrique George. Þetta staðfesti Everton á heimasíðu sinni nú rétt í þessu.
Emelía Óskarsdóttir hefur samið við danska félagið FCK um að leika með liðinu á láni frá HB Köge út þetta tímabil.
Nýliðar Sunderland voru að koma síðustu félagaskiptum sínum yfir línuna í kvöld en Ekvadorinn Nilson Angulo er kominn til félagsins frá Anderlecht fyrir 17,5 milljónir punda.
Hinn öskufljóti kantmaður, Allan Saint-Maximin, er kominn aftur heim til Frakklands en hann samdi í kvöld við Lens sem er í titilbaráttunni í frönsku úrvalsdeildinni.
Mónakó var að landa Fílabeinsstrendingnum Simon Adingra á láni frá Sunderland.
Nottingham Forest tókst að ganga frá kaupum á þýska bakverðinum Luca Netz frá Borussia Mönchengladbach í tæka tíð, en hann kemur fyrir aðeins 2 milljónir punda.
Stefán Ingi Sigurðarson er genginn í raðir hollenska félagsins Go Ahead Eagles sem kaupir hann frá norska félaginu Sandefjord. Hann var kynntur sem nýr leikmaður félagsins rétt í þessu. Stefán Ingi, sem er 25 ára framherji, skrifar undir samning sem gildir fram á sumarið 2030. Hann kom til Sandefjord frá belgíska félaginu Patro Eisden sumarið 2024. Fyrr í dag greindi norski fjölmiðillinn <i>TV2</i> frá því að kaupverðið væri 34 milljónir norskra króna sem samsvarar 430 milljónum íslenskra króna og þremur milljónum evra. Um er að ræða metsölu hjá Sandefjord en fyrra met átti Christopher Cheng sem fór til pólska félagsins Widsew Lodz í byrjun gluggans fyrir 900 þúsund evrur.
Fílabeinsstrendingurinn David Datro Fofana er annar Chelsea-maðurinn sem er lánaður til Strasbourg í dag, en skiptin voru staðfest nú rétt í þessu.
Frakkinn Adil Aouchiche er farinn frá Sunderland og genginn í raðir Schalke í Þýskalandi. Samningurinn er út næsta tímabil.
Kalvin Phillips, miðjumaður Manchester City, er genginn til liðs við Sheffield United á láni út tímabilið.
Franska félagið Strasbourg hefur staðfest komu argentínska varnarmannsins Aaron Anselmino á láni frá Chelsea.
Brighton hefur staðfest að miðjumaðurinn Matt O'Riley hafi verið kallaður til baka eftir lánsdvöl hjá Marseille. Danski landsliðsmaðurinn fór til franska félagsins í ágúst og lék 25 leiki fyrir lærisveina Roberto De Zerbi.
Keflavik hefur samið við Anton Kralj um að leika með liðinu á komandi tímabili í Bestu deildinni. Vinstri bakvörðurinn kemur til Keflavikur frá Vestra þar sem hann var í stóru hlutverki á síðasta tímabili og hjálpaði liðinu að verða bikarmeistari í fyrsta sinn í sögu þess. Anton er 27 ára og lék á sínum tíma fyrir yngr landslið Svíþjóðar. Keflavík varð fyrir áfalli í síðasta mánuði þegar Viktor Elmar Gautason sleit krossband í annað sinn á ferlinum og nú hefur Keflavík fengið inn nýjan vinstri bakvörð.
Bikarmeistarar Crystal Palace hafa gengið frá kaupunum á norska landsliðsmanninum Jörgen Strand Larsen frá Wolves fyrir 48 milljónir punda sem er nýtt met hjá Lundúnafélaginu.
Portúgalski landsliðsmaðurinn Joao Mario er kominn til Bologna á láni frá Juventus út tímabilið.
Nýliða Pisa hafa klófest enska leikmanninn Samuel Iling Jr á láni frá Aston Villa út leiktíðina.
Chelsea hefur staðfest að Mamadou Sarr hafi verið kallaður til baka úr láni hjá franska systurfélaginu Strasbourg. Mögulegt er að Sarr spili gegn Wolves á laugardag. Chelsea ákvað að kalla Sarr til baka þar sem Jeremy Jacquet, miðvörður Rennes, hætti við að fara til Chelsea og valdi Liverpool í ljósi þess að hann sér meiri möguleika á spiltíma. Sarr er tvítugur senegalskur landsliðsmiðvörður.
Enski kantmaðurinn Jesurun Rak-Sakyi er mættur til Stoke City á láni frá bikarmeisturum Crystal Palace út tímabilið.