Fotbolti.net
02.02.26 - 18:27
Brynjar Ingi Erluson

Kantmaður Palace klárar tímabilið með Stoke (Staðfest)

Kantmaður Palace klárar tímabilið með Stoke (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

Enski kantmaðurinn Jesurun Rak-Sakyi er mættur til Stoke City á láni frá bikarmeisturum Crystal Palace út tímabilið.
Rak-Sakyi, sem er 23 ára gamall, á að baki sex úrvalsdeildarleiki með Palace.

Hann hjálpaði Sheffield United að komast í úrslit úrvalsdeildarumspilsins á síðasta ári með því að skora sjö mörk í 22 leikjum í B-deildinni.

Palace lánaði hann til Caykur Rizespor í Tyrklandi fyrir þetta tímabil þar sem hann gerði 4 mörk í 11 deildarleikjum áður en hann var kallaður til baka um áramótin.

Vængmaðurinn er nú farinn aftur frá Palace en hann mun leika með Stoke City út leiktíðina.

Stoke er í 12. sæti B-deildarinnar með 42 stig, fimm stigum frá umspilssæti þegar þrjátíu umferðir hafa verið leiknar.

Championship - karlar

#LiðLmunStig
1Birmingham15+1429
2Middlesbrough15+1129
3Stoke City15+629
4Wolves15+828
5West Brom15+828
6Swansea15+426
7Southampton15+1424
8QPR15+624
9West Ham15+1423
10Sheffield Utd15+222
11Portsmouth15+222
12Norwich15+821
13Blackburn15-121
14Cardiff City15018
15Wrexham15-218
16Millwall15-418
17Bristol City15-818
18Bolton15-917
19Charlton Athletic15-1017
20Watford15-1015
21Lincoln City15-1115
22Burnley15-910
23Derby County15-1610
24Preston NE15-178
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.