Nýliða Pisa hafa klófest enska leikmanninn Samuel Iling Jr á láni frá Aston Villa út leiktíðina.
Iling Jr er 22 ára gamall vængbakvörður sem fór í gegnum akademíuna hjá Chelsea áður en Juventus fékk hann árið 2020.
Hann þótti mikið efni á yngri árum og tókst að spila 45 leiki fyrir aðallið Juventus áður en hann var seldur til Aston Villa árið 2024 fyrir tæpar 15 milljónir punda.
Juventus taldi hann nógu góðan til að spila fyrir aðalliðið en það hefur ekki verið sama upp á teningnum hjá Villa þar sem hann á enn eftir að spila sinn fyrsta leik fyrir félagið.
Englendingurinn var lánaður til Bologna árið 2024 og síðan aftur til Middlesbrough. Í byrjun tímabilsins var hann sendur til WBA en sneri aftur um áramótin.
Hann er nú farinn í fjórða sinn frá Vllla en hann hefur gert lánssamning við Pisa út þessa leiktíð.
Pisa er í næst neðsta sæti Seríu A með 14 stig og í harðri baráttu um að halda sæti sínu. Það er allt í molum hjá félaginu en Alberto Gilardino var rekinn í gær eftir slaka frammistöðu þar sem honum tókst aðeins að stýra liðinu til sigurs í einum deildarleik.
Athugasemdir



