Gluggadagurinn er í dag en glugganum verður lokað í ensku úrvalsdeildinni klukkan 19 - Fótbolti.net stendur vaktina
   mán 02. febrúar 2026 21:49
Brynjar Ingi Erluson
George til Everton á láni frá Chelsea (Staðfest)
Mynd: Everton
Everton gekk í kvöld frá lánssamningi við Chelsea um enska sóknartengiliðinn Tyrique George. Þetta staðfesti Everton á heimasíðu sinni nú rétt í þessu.

George er 19 ára gamall og kom við sögu í ellefu leikjum með Chelsea á þessu tímabili, en náði aldrei að spila leik fyrir Liam Rosenior sem tók við keflinu af Enzo Maresca í byrjun janúar.

Hann var frábær er Chelsea vann Sambandsdeildina á síðasta ári og varð þá heimsmeistari með liðinu um sumarið.

Englendingurinn skoðaði að yfirgefa Chelsea síðasta sumar í leit að fleiri mínútum. Hann átti að fara til Fulham undir lok sumargluggans, en skiptin duttu upp fyrir sig á elleftu stundu.

Aftur var George á síðustu stundu með að koma sér frá félaginu og í þetta sinn tókst það. Everton hefur landað honum á láni út tímabilið og fylgir kaupákvæði samningnum.

„Ég er ótrúlega spenntur með að vera kominn hingað og nýt ég þess í botn að vera kominn í þetta risastóra félag. Ég get ekki beðið eftir að koma mér af stað," sagði George við undirskrift.


Athugasemdir
banner
banner