Botnlið Wolves tókst að fá tvo leikmenn til félagsins á lokametrum félagaskiptagluggans en Adam Armstrong og Angel Gomes voru kynntir hjá félaginu í kvöld.
Armstrong er 28 ára gamall sóknarmaður sem kemur frá Southampton.
Hann skoraði 11 mörk í ensku B-deildinni með Southampton á tímabilinu og mun koma í stað Jörgen Strand Larsen sem fór til Crystal Palace.
Armstrong skrifaði undir þriggja og hálfs árs samning við félagið.
Þá fékk félagið enska miðjumanninn Angel Gomes á láni frá Marseille í Frakklandi.
Þessi 25 ára gamli leikmaður ólst upp hjá Manchester United, en hann hefur einnig leikið með Lille.
Wolves getur gert skiptin varanleg í sumar, en þetta verður sterk viðbót við leikmannahóp Wolves sem þarf algert kraftaverk til að halda sæti sínu í deildinni.
Angel Gomes has signed on loan until the end of the season.
— Wolves (@Wolves) February 2, 2026
Welcome to the pack, Angel ?? https://t.co/yZRxGDlFDL
A deadline day addition. ??
— Wolves (@Wolves) February 2, 2026
Adam Armstrong has signed a three-and-a-half-year deal at Molineux. https://t.co/bODQZp10Ci
Athugasemdir


