Danska úrvalsdeildarfélagið Viborg tilkynnti komu Ísaks Andra Sigurgeirssonar frá Norrköping í kvöld, en hann kemur á láni út tímabilið með kaupmöguleika.
Stjörnumaðurinn féll með Norrköping niður í sænsku B-deildina í lok síðasta árs.
Hann kom til Norrköping frá Stjörnunni árið 2023 eftir að hafa verið einn af bestu leikmönnum Bestu deildarinnar.
Ísak byrjaði síðasta tímabil með Norrköping mjög vel en dalaði þegar leið á tímabilið. Eftir leiktíðina sagðist hann halda öllum möguleikum opnum og tók hann á endanum ákvörðun um að færa sig um set.
Fótbolti.net sagði frá því fyrr í dag að hann væri á leið til Viborg á láni og hefur danska félagið staðfest tíðindin. Félagið getur keypt hann á meðan lánsdvölinni stendur.
Viborg er í 7. sæti dönsku úrvalsdeildarinnar og komið í undanúrslit bikarsins.
???????????????? ???????????????????? ???????????????????????????????????????????????????? ?????
— Viborg FF ?? (@viborgff) February 2, 2026
Den islandske kantspiller er lejet hos @ifknorrkoping for resten af sæsonen. Aftalen indeholder en købsoption.
???? https://t.co/urEq8GmQW0 pic.twitter.com/xy7YhlSTgr
Athugasemdir



