Nýliðar Sunderland voru að koma síðustu félagaskiptum sínum yfir línuna í kvöld en Ekvadorinn Nilson Angulo er kominn til félagsins frá Anderlecht fyrir 17,5 milljónir punda.
Angulo er 22 ára landsliðsmaður Ekvador en hann gat samið við félagið eftir að Adil Aouchiche fór til Schalke.
Vængmaðurinn hóf feril sinn hjá LDU Quito í Ekvador en fór til Anderlecht árið 2022.
Hann skoraði 10 mörk í 92 leikjum með Anderlecht á tíma sínum í Belgíu.
Skipti hans til Sunderland hleypti þá Fílabeinsstrendingnum Simon Adingra til Mónakó, en félagaskipti hans voru staðfest fyrr í kvöld.
Sunderland tilkynnti kaupin á Angulo á X eða þegar flautað var til loka fyrri hálfleiks í leik liðsins gegn Burnley. Sunderland leiðir með tveimur mörkum gegn engu.
We are delighted to announce the signing of Nilson Angulo, subject to international clearance.
— Sunderland AFC (@SunderlandAFC) February 2, 2026
Welcome to Sunderland AFC, Nilson! ????
?? @livescore
Athugasemdir




