Gluggadagurinn er í dag en glugganum verður lokað í ensku úrvalsdeildinni klukkan 19 - Fótbolti.net stendur vaktina
banner
   mán 02. febrúar 2026 19:16
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Anton Kralj til Keflavíkur (Staðfest)
Mynd: Keflavík
Keflavik hefur samið við Anton Kralj um að leika með liðinu á komandi tímabili í Bestu deildinni. Vinstri bakvörðurinn kemur til Keflavikur frá Vestra þar sem hann var í stóru hlutverki á síðasta tímabili og hjálpaði liðinu að verða bikarmeistari í fyrsta sinn í sögu þess.

Anton er 27 ára og lék á sínum tíma fyrir yngr landslið Svíþjóðar.

Keflavík varð fyrir áfalli í síðasta mánuði þegar Viktor Elmar Gautason sleit krossband í annað sinn á ferlinum og nú hefur Keflavík fengið inn nýjan vinstri bakvörð.

Kralj var hjá Sundsvall, Degerfors, Sandefjord, Malmö og Hammarby áður en hann kom til Íslands. Hann skoraði eitt mark í 24 leikjum á síðasta tímabili í Bestu deildinni.

Athugasemdir
banner