Gluggadagurinn er í dag en glugganum verður lokað í ensku úrvalsdeildinni klukkan 19 - Fótbolti.net stendur vaktina
   mán 02. febrúar 2026 21:41
Brynjar Ingi Erluson
Emelía Óskars til FCK (Staðfest)
Kvenaboltinn
Mynd: FCK
Emelía Óskarsdóttir hefur samið við danska félagið FCK um að leika með liðinu á láni frá HB Köge út þetta tímabil.

Emelía er 19 ára gömul og er sterk viðbót við leikmannahóp FCK sem er að berjast um að komast upp í A-deildina í Danmörku.

Hún var valin efnilegasti leikmaður HB Köge á síðasta ári og er því mikill fengur fyrir FCK.

FCK þekkir nafnið vel en hún er systir Orra Steins Óskarssonar sem lék með FCK frá 2020 til 2024 áður en hann var seldur fyrir metfé til Real Sociedad á Spáni.

Kvennalið FCK er í öðru sæti B-deildarinnar með 35 stig og verða því íslensku fótboltakonurnar tvær hjá félaginu en Sunneva Hrönn Sigurvinsdóttir kom til félagsins frá FH í nóvember árið 2024 og spilað stóra rullu í árangri liðsins á þessu rúma ári sem hún hefur verið í Kaupmannahöfn.



Athugasemdir
banner
banner