Gluggadagurinn er í dag en glugganum verður lokað í ensku úrvalsdeildinni klukkan 19 - Fótbolti.net stendur vaktina
   mán 02. febrúar 2026 20:39
Brynjar Ingi Erluson
Adingra til Mónakó (Staðfest) - Geta keypt hann fyrir 16 milljónir
Mynd: Mónakó
Mónakó var að landa Fílabeinsstrendingnum Simon Adingra á láni frá Sunderland.

Adingra er 24 ára gamall vængmaður sem spilaði frábærlega með Nordsjælland í Danmörku áður en hann gekk í raðir Brighton á Englandi.

Þar spilaði hann í þrjú ár áður en hann samdi við Sunderland. Hann lék 15 leiki með Sunderland á tímabilinu, en er nú kominn til Mónakó í Frakklandi.

Vængmaðurinn, sem var valinn besti ungi leikmaður Afríkukeppninnar árið 2023, náði að ganga í raðir Mónakó á síðustu mínútum gluggans.

Kaupákvæði er í samningnum en það nemur um 16 milljónum punda.



Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey

Athugasemdir
banner
banner
banner