Gluggadagurinn er í dag en glugganum verður lokað í ensku úrvalsdeildinni klukkan 19 - Fótbolti.net stendur vaktina
   mán 02. febrúar 2026 19:38
Brynjar Ingi Erluson
Frá Sunderland til Schalke (Staðfest)
Mynd: Schalke
Frakkinn Adil Aouchiche er farinn frá Sunderland og genginn í raðir Schalke í Þýskalandi. Samningurinn er út næsta tímabil.

Miðjumaðurinn var á láni hjá Aberdeen í Skotlandi fyrri hluta tímabilsins, en var kallaður til baka.

Hann er nú farinn til Schalke sem er á toppnum í B-deildinni í Þýskalandi og hjálpar þetta Sunderland að ganga frá kaupunum á Nilson Angulo frá Anderlecht fyrir 17,5 milljónir punda.

Sömuleiðis getur Simon Adingra farið til Mónakó á láni út þessa leiktíð með möguleika á að gera skiptin varanleg í sumar


Athugasemdir
banner
banner