Gluggadagurinn er í dag en glugganum verður lokað í ensku úrvalsdeildinni klukkan 19 - Fótbolti.net stendur vaktina
   mán 02. febrúar 2026 20:21
Brynjar Ingi Erluson
Luca Netz til Forest (Staðfest)
Mynd: EPA
Nottingham Forest tókst að ganga frá kaupum á þýska bakverðinum Luca Netz frá Borussia Mönchengladbach í tæka tíð, en hann kemur fyrir aðeins 2 milljónir punda.

Netz er 22 ára gamall og var eitt sinn talinn einn efnilegasti leikmaður Þýskalands.

Hann á meira en hundrað leiki að baki með Gladbach og 40 landsleiki með yngri landsliðum Þýskalands.

Forest náði samkomulagi við Gladbach um Netz fyrir skömmu og sendi Forest inn eyðublað til að fá frest til að ganga frá kaupunum.

Kaupin voru síðan staðfest núna en kapverðið er um það bil tvær milljónir punda og mun Gladbach fá hluta af endursöluverði leikmannsins.

Netz, sem var að renna út á samningi hjá Gladbach, skrifaði undir fjögurra og hálfs árs samning hjá Forest.


Athugasemdir
banner
banner