Gluggadagurinn er í dag en glugganum verður lokað í ensku úrvalsdeildinni klukkan 19 - Fótbolti.net stendur vaktina
   mán 02. febrúar 2026 19:10
Brynjar Ingi Erluson
Strand Larsen til Crystal Palace fyrir metfé (Staðfest)
Mynd: Crystal Palace
Bikarmeistarar Crystal Palace hafa gengið frá kaupunum á norska landsliðsmanninum Jörgen Strand Larsen frá Wolves fyrir 48 milljónir punda sem er nýtt met hjá Lundúnafélaginu.

Palace ákvað að ganga frá skiptunum þrátt fyrir að franski sóknarmaðurinnn Jean-Philippe Mateta hafi fallið á læknisskoðun hjá AC Milan.

Mateta var á leið til Milan en það kom upp vandamál í læknisskoðuninni og fór það svo að hann sneri aftur til Lundúna og mun klára tímabilið með Palace.

Strand Larsen var númer eitt á óskalista Palace. Samkomulag náðist við Wolves, en Palace greiðir þeim 43 milljónir punda og fimm milljónir í árangurstengdar greiðslur.

Þetta er í annað sinn í þessum glugga sem Palace bætir félagaskiptamet sitt, en það gerði það snemma í glugganum þegar félagið keypti Brennan Johnson frá Tottenham fyrir 35 milljónir punda.

Strand Larsen er 25 ára gamall og skoraði 20 mörk og gaf 7 stoðsendingar í 64 leikjum með Úlfunum. Newcastle United reyndi að kaupa hann síðasta sumar en Wolves hafnaði öllum tilboðum félagsins.


Athugasemdir
banner