Oliver Sigurjónsson leggur skóna á hilluna (Staðfest)
Oliver Sigurjónsson hefur lagt fótboltaskóna á hilluna aðeins 30 ára gamall vegna meiðsla.
Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.
Niðurstöður
Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögn og texta skilaði 25087 niðurstöðum.
Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.
Oliver Sigurjónsson hefur lagt fótboltaskóna á hilluna aðeins 30 ára gamall vegna meiðsla.
Tyrklandsmeistarar Galatasaray eru búnir að staðfesta félagaskipti Noa Lang til sín úr röðum Ítalíumeistara Napoli.
James Garner hefur bundið enda á sögusagnir sem hafa orðað hann við brottför frá Everton með því að skrifa undir nýjan samning við félagið.
Nottingham Forest er búið að staðfesta félagaskipti Lorenzo Lucca frá Ítalíumeisturum Napoli.
Ethan Nwaneri er formlega genginn í raðir franska félagsins Marseille á láni frá Arsenal út tímabilið. Nwaneri er 18 ára og leikur sem sóknarmiðjumaður eða vængmaður. Hann lék 37 leiki fyrir Arsenal á síðasta tímabili en hefur aðeins spilað 12 á þessu tímabili og ekki byrjað neinn deildarleik. <i>„Við óskum Ethan alls hins besta hjá Marseille og hlökkum til að sjá hann þróa hæfileika sína í einni bestu deild Evrópu,"</i> segir í tilkynningu Arsenal. <i>„Eftir að við ræddum við hann, pabba hans og umboðsmanninn þá töldum við best fyrir hans framþróun að hann færi á láni. Hjá Marseille er einnig stjóri sem vill spila af hugrekki og er óhræddur við að nota unga leikmenn,"</i> segir Mikel Arteta, stjóri Arsenal. Stjóri Marseille er Roberto De Zerbi, fyrrum stjóri Brighton. Marseille er í þriðja sæti frönsku deildarinnar, sjö stigum frá PSG og átta stigum frá Lens sem er óvænt á toppnum.
Grindavík hefur fest kaup á Inga Þór Sigurðssyni frá ÍA. Ingi lék á láni með Grindvíkingum á síðustu leiktíð og spilaði 21 leik í deildinni og skoraði þrjú mörk. Ingi, sem er yngri bróðir landsliðsmannsins Arnórs Sigurðssonar, spilaði 49 leiki í efstu deild fyrir ÍA þar sem hann skoraði þar sjö mörk og lagði upp fimm.
Hafsentinn ungi Jón Arnar Sigurðsson er genginn til liðs við ÍR frá uppeldisfélagi sínu KR og hefur skrifað undir tveggja ára samning við Breiðhyltinga. Jón er fæddur árið 2007 og leikur jafnan sem hafsent, en getur einnig leyst fleiri stöður í varnarlínunni.
Færeyski sóknarmaðurinn Jóan Símun Edmundsson verður áfram hjá KA en hann hefur samið út komandi tímabil. <i>„Liðið virkaði rosalega flott undir lokin í fyrra, það eru margar ástæður fyrir því og ein af þeim er sú að Jóan spilaði gríðarlega vel frammi. Jafnvægið í liðinu var flott, skoruðum fullt af mörkum og náðum í góð úrslit. Hann gerði rosalega vel seinni hlutann, eftir að bæði liðið og hann var ekki upp á sitt besta fyrri hlutann,"</i> sagði Hallgrímur Jónasson, þjálfari KA, í viðtali við Fótbolta.net áður en samið var við Jóan Simun.
KFG hefur ráðið Brynjar Kristmundsson og Olgeir Sigurgeirsson sem þjálfara liðsins fyrir tímabilið í 2. deild næsta sumar. Þórir Karlsson og Orian Burzic verða einnig í teyminu. Veigar Páll Gunnarsson og Andrés Már Logason hafa látið af störfum.
Ragna Lára Ragnarsdóttir er gengin í raðir Aftureldingar og hefur skrifað undir samning sem gildir út tímabilið 2027. Hún er markmaður sem fædd er árið 2010. Hún hefur síðustu misseri verið hluti U15 og U16 landsliðshópum og á að baki einn leik með U16.
Katrín Erla Clausen hefur skrifað undir nýjan samning við Fram og tekur slaginn í Úlfardárdal á komandi tímabili. Katrín ákvað að nýta sér uppsagnarákvæði í samningi sínum við Fram fyrr í vetur en nú, tveimur mánuðum seinna, hefur hún skrifað undir nýjan samning við Fram.
Svissneski sóknarmaðurinn Alisha Lehmann, frægasta fótboltakona heims, hefur skrifað undir tveggja og hálfs árs samning við Leicester. Hún verður liðsfélagi Hlínar Eiríksdóttur. Lehmann er gríðarlega vinsæl á samfélagsmiðlum en tæplega 16 milljónir fylgja henni á Instagram.
Tottenham hefur samið við brasilíska varnarmanninn Souza en hann kemur til liðsins frá Santos í heimalandinu. Hann er 19 ára gamall vinstri bakvörður en hann skrifar undir langtíma samning við félagið.
Brasilíski miðjumaðurinn Casemiro hefur gefið það út að hann muni yfirgefa Manchester United þegar samningur hans við félagið rennur út í sumar. Casemiro var keyptur til United frá Real Madrid sumarið 2022 og hefur hann unnið enska bikarinn og deildabikarinn sem leikmaður félagsins. Hann hefur til þessa leikið 146 leiki fyrir United og skorað í þeim 21 mark.
FH hefur keypt Adolf Daða Birgisson frá Stjörnunni en þetta kemur fram í tilkynningu frá Hafnarfjarðarfélaginu. Hann skrifaði undir fjögurra ára samning. <i>„Tækifærin hafa verið af skornum skammti undanfarið en við ætlum okkur að hjálpa honum að koma ferlinum á fulla ferð á nýjan leik,"</i> segir Davíð Þór Viðarsson, yfirmaður fótboltamála hjá FH. Síðasta sumar var Adolf ekki í mjög stóru hlutverki hjá Garðbæingum, hann kom við sögu í 17 leikjum í Bestu deildinni og skoraði hann í þeim eitt mark. Hann gerði þá eitt mark í fjórum leikjum í Mjólkurbikarnum. Adolf Daði er 21 árs gamall og spilar á kantinum. Hann getur líka leyst aðrar stöður framarlega á vellinum. Hann á að baki þrjá leiki með U21 landsliði Íslands. <i>„Við höfum fylgst með Adolf í dágóðan tíma og erum mjög ánægðir með að hafa náð að klófesta hann. Hann kemur inn með mikla orku, hraða og vinnusemi. Getur leyst báðar kantstöðurnar og framherjastöðuna hjá okkur. Hann hefur einnig fína reynslu úr efstu deild,"</i> segir Davíð í tilkynningu FH.
Oscar Wasilewski hefur samið við Fjölni til tveggja ára en hann kemur frá Kára á Akranesi.
Þór/KA hefur tilkynnt fimm nýja leikmenn fyrir komandi átök í Bestu deildinni en þrjár af þeim koma frá nágrönnum þeirra í Tindastóli og þá hefur félagið sótt tvo bandaríska leikmenn.
Ítalski miðjumaðurinn Edoardo Bove skrifaði undir fimm og hálfs árs samning við enska B-deildarfélagið Watford í dag.
Grindavík/Njarðvík, sem vann sér sæti í Bestu deild kvenna síðasta haust, hafa fengið til sín bandaríska miðjumanninn Maci Teater en hún gerir samning út næsta tímabil.
Marc Andre ter Stegen hefur skrifað undir samning við Girona en hann kemur á láni út tímabilið frá Barcelona. Ter Stegen meiddist illa á síðustu leiktíð en hann hefur fallið niður goggunarröðina hjá Barcelona eftir að hann sneri aftur með komu Joan Garcia og Wojciech Szczesny.