Gummi Magg kveður Fram (Staðfest)
Guðmundur Magnússon er búinn að kveðja uppeldisfélagið sitt Fram í fjórða sinn á ferlinum.
Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.
Niðurstöður
Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögnum skilaði 24391 niðurstöðum.
Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.
Guðmundur Magnússon er búinn að kveðja uppeldisfélagið sitt Fram í fjórða sinn á ferlinum.
Þorri Heiðar Bergmann er búinn að framlengja samning sinn við ÍBV en hann kom við sögu í tveimur keppnisleikjum með meistaraflokki í fyrra.
Ensku bikarmeistararnir í Crystal Palace eru búnir að kynna velska kantmanninn Brennan Johnson til leiks sem nýjan leikmann liðsins.
Þýski miðjumaðurinn Pascal Gross er kominn aftur til Brighton eftir eins og hálfs árs fjarveru.
Framherjinn Niclas Fullkrug hefur gengið í raðir AC Milan á láni frá West Ham út tímabilið. Ítalska félagið er með ákvæði um að geta keypt hann alfarið. Fullkrug, sem er 32 ára, var keyptur til West Ham frá Dortmund á 27 milljónir punda 2024 en náði ekki að finna sig í enska boltanum. Hann skoraði aðeins þrjú mörk í 29 leikjum fyrir Hamrana.
Reynir Sandgerði er búinn að bæta við sig 19 ára miðjumanni sem kemur á lánssamningi úr röðum Grindavíkur.
Manchester United er búið að staðfesta endurkomu Toby Collyer til félagsins eftir að hafa leikið á láni hjá West Bromwich Albion á fyrri hluta tímabils.
Aston Villa er búið að festa kaup á brasilíska kantmanninum Alysson sem kemur til félagsins úr röðum Gremio í heimalandinu.
Enzo Maresca er hættur sem stjóri Chelsea, þetta staðfestir félagið á heimasíðu sinni. Breytingar hjá Chelsea hafa legið í loftinu að undanförnu, stuðningsmenn voru farnir að missa trú á stjóranum og hann og stjórnendateymi Chelsea gengu ekki í takt. Mikið var fjallað um ummæli Maresca á fréttamannafundi eftir sigur gegn Everton um miðjan desember. Þar gagnrýndi hann hluta stjórnenda opinberlega fyrir að standa ekki með sér á erfiðum köflum tímabilsins. Gengi liðsins hefur verið mjög dapurt síðustu vikur, einungis tveir sigrar í síðustu níu leikjum og stjórinn mætti ekki á fréttamannafund eftir leikinn gegn Bournemouth á þriðjudag sem endaði með 2-2 jafntefli. Það reyndist lokaleikur Ítalans í starfi hjá Chelsea.
Enska úrvalsdeildarfélagið Newcastle United er búið að senda spænska táninginn Antonio Cordero til Spánar.
Varnarjaxlinn Guðrún Arnardóttir er farin frá Braga eftir hálft ár í Portúgal.
Þorlákur Breki Baxter er genginn til liðs við Keflavík og gerir hann fjögurra ára samning við félagið.
Samantha Smith hefur gengið til liðs við Boston Legacy FC í efstu deild í Bandaríkjunum. Hún var lykilmaður í Íslandsmeistaraliði Breiðabliks í sumar en var samningslaus eftir tímabil og hugurinn leitaði heim. Boston Legacy er lið sem er nýlega stofnað og mun á komandi tímabili spila í fyrsta sinn í NWSL deildinni í Bandaríkjunum. Hún er frá Boston og lék með Boston College Eagles í háskólaboltanum á árunum 2019-2022.
Sævar Orri Valgeirsson er genginn til liðs við Reyni Sandgerði úr röðum KH og gerir tveggja ára samning við félagið.
Guðni Sigþórsson er genginn til liðs við uppeldisfélagið sitt Magna í Grenivík og gerir tveggja ára samning.
Sóknarmaðurinn Markús Máni Jónsson er mættur til Ægis frá Víði í Garði.
ÍBV hefur fengið færeysku landsliðskonuna Fridrikku Mariu Clementsen til félagsins fyrir komandi tímabil.
Osasuna hefur náð samkomulagi við Atlético Madríd um spænska vinstri bakvörðinn Javi Galan en hann gengur til liðs við félagið um áramótin. Þetta kemur fram í tilkynningu Osasuna.
Jólagjöf Þróttara er komin í hús en félagið tilkynnti nú rétt í þessu að Sigurður Egill Lárusson sé genginn í raðir félagsins og mun spila með liðinu á komandi tímabili.
Viðar Ari Jónsson verður áfram í herbúðum norska úrvalsdeildarfélagsins HamKam en hann skrifaði undir nýjan eins árs samning við félagið í gær.