Fotbolti.net

Leita

Leita í fréttum

Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.

Leitarhamur

Dagsetning

Ef ekkert leitarorð er slegið inn notar síðan dagsetninguna sem einfalt fréttasafnsfilter.

Niðurstöður

Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögnum skilaði 24391 niðurstöðum.

Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.

Niðurstöður

FRÉTTIR18.12.2025, 22:50

Óðinn Bjarka í Aftureldingu (Staðfest)

Afturelding hefur fengið vænan liðsstyrk fyrir komandi átök í Lengjudeildinni en Óðinn Bjarkason er genginn í raðir félagsins frá KR.

FRÉTTIR18.12.2025, 17:30

Spænskur kantmaður í Víking Ó. (Staðfest)

Víkingur Ólafsvík hefur samið við spænska kantmanninn Naim Aaras um að spila með liðinu á komandi ári. Naim er 22 ára kantmaður sem býr yfir miklum hraða. Hann kemur til Víkings frá CD El Alamo þar sem hann hefur spilað með Gonzalo Zamorano, fyrrum leikmanni Víkings.

FRÉTTIR16.12.2025, 21:30

Tomiyasu til Ajax (Staðfest)

Japanski varnarmaðurinn Takehiro Tomiyasu er mættur til Ajax á frjálsri sölu en þetta staðfesti félagið með tilkynningu í dag.

FRÉTTIR15.12.2025, 17:45

Thelma Lóa áfram hjá FH (Staðfest)

Thelma Lóa Hermannsdóttir kom sem stormsveipur inn í lið FH á seinni hluta sumars og er búin að gera nýjan samning við félagið eftir frábæra frammistöðu.

FRÉTTIR15.12.2025, 06:00

Ægir framlengir við algjöran lykilmann (Staðfest)

Stefan Dabetic hefur framlengt samning sinn við Ægi út næsta tímabil. Hann er á leið inn í áttunda tímabil með liðinu en liðið spilar í Lengjudeildinni næsta sumar eftir að hafa unnið 2. deild síðasta sumar.

FRÉTTIR12.12.2025, 12:51

Kári Kristjáns frá Þrótti til FH (Staðfest)

Kári Kristjánsson hefur verið kynntur sem nýr leikmaður FH. Kári hefur undanfarin ár verið einn besti leikmaður Lengjudeildarinnar þar sem hann spilaði fyrir Þrótt. Jóhannes Karl Guðjónsson, nýr þjálfari FH, er að styrkja lið sitt fyrir komandi sumar og er að vinna í því að yngja hópinn. Kári er 21 árs gamall. Hér að neðan má sjá tilkynningu FH.

FRÉTTIR12.12.2025, 06:00

Grindavík fær fjóra nýja leikmenn (Staðfest)

Grindavík kynnti til leiks fjóra nýja leikmenn í gær fyrir átökin í Lengjudeildinni næsta sumar. Stefán Jón Friðriksson, Valur Þór Hákonarson, Rúnar Ingi Eysteinsson og Robert Blakala skrifuðu undir samninga við félagið. Þá framlengdi Viktor Guðberg Hauksson samning sinn við félagið.

FRÉTTIR11.12.2025, 14:35

Bjarni Aðalsteins til Danmerkur (Staðfest)

Bjarni Aðalsteinsson mun yfirgefa KA og spila með liði í dönsku C-deildinni á næstu leiktíð, félagið greindi frá tíðindunum fyrir skömmu en upplýsti ekki hvaða félag hann gengur til liðs við. Samkvæmt heimildum Fótbolta.net fer Bjarni til Roskilde. Liðið er í þriðja sæti dönsku C-deildarinnar nú þegar deildin er hálfnuð. Roskilde féll úr fyrstu deildinni í vor. Bjarni er 26 ára miðjumaður sem er uppalinn hjá KA, hann hefur spilað 149 leiki fyrir félagið. Hann spilaði 26 leiki í Bestu deildinni á síðasta tímabili. Bjarni bjó í Danmörku síðasta vetur ásamt kærustu sinni sem er í námi í Danmörku.

FRÉTTIR10.12.2025, 20:14

Kristófer Dagur í Val (Staðfest)

Valur er búið að semja við Kristófer Dag Arnarsson sem skiptir yfir til stórveldisins frá uppeldisfélagi sínu, Fjölni.

FRÉTTIR10.12.2025, 15:34

Dagur Dan kveður Orlando og fer til Montreal (Staðfest)

Dagur Dan Þórhallsson hefur fært sig um set í MLS-deildinni en CF Montreal gerði samkomulag við Orlando City. Orlando fær 500 þúsund Bandríkjadali fyrir Dag en sú upphæð gæti svo hækkað eftir ákvæðum. Dagur Dan gerir samning við Montreal til 2028 með möguleika á framlengingu til 2029,

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.