FRÉTTIR15.06.2026, 09:21
Real Madrid hefur fest kaup á spænska Marc Cucurella frá Chelsea. Bakvörðurinn skrifar undir sex ára samning við félagið.
Real Madrid greiðir rúmlega 50 milljónir punda fyrir Cucurella en hann var samningsbundinn Chelsea til ársins 2029. Lundúnaliðið borgaði rúmar 60 milljónir punda fyrir þann spænska fyrir fjórum árum.
FRÉTTIR14.06.2026, 09:45
Frá 1. júlí mun Víðir Sigurðsson hefja störf hjá Fótbolti.net. Mun hann skrifa pistla um íslenska boltann fyrir síðuna.<br><br>Víðir hefur starfað sem íþróttafréttamaður í 45 ár, þ.e frá árinu 1981. Hann hefur starfað hjá Dagblaðinu, Þjóðviljanum, DV og síðastliðin 25 ár hjá Morgunblaðinu.
FRÉTTIR13.06.2026, 19:39
Roberto Mancini er hættur sem þjálfari hjá katarska stórveldinu Al-Sadd eftir að hafa unnið efstu deild þar í landi á síðustu leiktíð.
FRÉTTIR13.06.2026, 19:25
Ralf Rangnick er ekki að taka við starfi yfirmanns fótboltamála hjá AC Milan eins og ítalskir fjölmiðlar hafa verið að skrifa um.
FRÉTTIR13.06.2026, 14:27
Manchester City goðsögnin Yaya Toure er tekinn við þjálfun slóvösku meistaranna í Slovan Bratislava en samningurinn er til þriggja ára.
FRÉTTIR13.06.2026, 10:53
Jón Þór Hauksson er nýr þjálfari Stjörnunnar, en hann kemur í stað Jökuls Elísabetarson sem var látinn taka poka sinn í gær. Þetta kemur fram í tilkynningu Stjörnunnar í dag.
FRÉTTIR12.06.2026, 20:33
Jökull Elísabetarson og Stjarnan hafa komist að samkomulagi um að hann hætti sem þjálfari liðsins.
FRÉTTIR12.06.2026, 13:30
Will Still er tekinn við sem nýr stjóri Auxerre í Frakklandi, hann skrifar undir tveggja ára samning með möguleika á árs framlengingu.
Still er 33 ára Englendingur sem vakti mikla athygli fyrir nokkrum árum fyrir árangur sinn með Reims í Frakklandi og ást sína á tölvuleiknum Football Manager.
Hann var rekinn sem stjóri Southampton í nóvember aðeins hálfu ári eftir að hann tók við liðinu.
FRÉTTIR11.06.2026, 18:33
Jose Mourinho er nýr þjálfari Real Madrid á Spáni, en þetta tilkynnti félagið á heimasíðu sinni í kvöld.
FRÉTTIR11.06.2026, 17:34
Landsliðsmaðurinn Hjörtur Hermannson verður ekki áfram hjá gríska félaginu Volos þegar samningur hans við félagið rennur út í lok mánaðar.
Hjörtur er 31 árs varnarmaður sem gekk í raðir félagsins í janúar í fyrra þegar hann kom frá Carrarese.
FRÉTTIR11.06.2026, 11:48
Martin O'Neill verður áfram stjóri Celtic á næsta tímabili eftir að hafa stýrt liðinu til sigurs í bæði deild og bikar sem bráðabirgðastjóri.
Hann tók tímabundið við liðinu eftir brotthvarf Brendan Rodgers og sneri svo aftur í janúar eftir stutta stjóratíð Wilfried Nancy.
FRÉTTIR11.06.2026, 08:54
Úlfarnir hafa nú staðfest að stjórinn Rob Edwards hefur verið rekinn eftir aðeins sjö mánuði við stjórnvölinn.
Áður hafði félagið sagst standa við bakið á stjóranum.
Skyndilega bárust fréttir af því að næsti stjóri Wolves yrði Cesar Peixoto, Portúgali sem stýði Gil Vicente í sjötta sætið í portúgölsku deildinni.
FRÉTTIR10.06.2026, 19:14
Hinn 16 ára gamli Kennet Eichhorn er genginn til liðs við Leverkusen frá Hertha Berlin en hann skrifar undir fimm ára samning við félagið.
Sky Sports í Þýskalandi greinir frá því að Leverkusen borgaði 8-9 milljónir evra fyrir hann.
FRÉTTIR10.06.2026, 18:00
Ben Davies hefur skrifað undir nýjan eins árs samning við Tottenham. Hann er á leið inn í sitt 13. tímabil með liðinu.
Davies spilaði aðeins fimm leiki á síðasta tímabili en en meiðsli setti strik í reikninginn. Roberto De Zerbi hrósaði honum hins vegar fyrir leiðtogahæfileika sína á erfiðu tímabili þar sem Tottenham bjargaði sér frá falli á síðustu stundu.
FRÉTTIR10.06.2026, 17:31
Kieran McKenna hefur ákveðið að láta af störfum sem stjóri Ipswich og ætlar að taka sér hlé frá fótbolta.
Ákvörðunin óvænta kemur rúmum mánuði eftir að hann kom liðinu upp í ensku úrvalsdeildina. Hann stýrði Ipswich alls í fimm ár.
Þessi fertugi Norður-Íri hefur í sumar verið orðaður við stjórastól Fulham eftir að Marco Silva yfirgaf félagið en ljóst er að ekkert verður úr því.
Á heimasíðu félagsins segir McKenna ákvörðunina hafa verið tekna eftir vandlega umhugsun síðustu vikur og taldi tímann réttan eftir að hafa tryggt félaginu sæti í úrvalsdeildinni á ný.
Liðið hafnaði í öðru sæti í Championship deildinni á nýloknu tímabili en liðið hafði fallið úr ensku úrvalsdeildinni árið áður.
FRÉTTIR10.06.2026, 16:26
Tottenham hefur tilkynnt um komu Marcos Senesi sem kemur á frjálsri sölu frá Bournemouth. Argentíski varnarmaðurinn skrifar undir fjögurra ára samning við félagið.
Tottenham ætlar sér að styrkja raðirnar fyrir komandi tímabil í úrvalsdeildinni og hefur þegar tilkynnt um komu Andy Robertson frá Liverpool.
Þá er félagið jafnframt nálægt því að landa Jan Paul van Hecke frá Brighton.
Bournemouth reyndi í vetur að fá Senesi til að skrifa undir nýjan samning en hann hafnaði þremur tilboðum félagsins og fór að ræða við aðra klúbba.
FRÉTTIR10.06.2026, 12:25
Newcastle hefur gengið frá kaupum á franska markverðinum Ewen Jaouen frá Reims.
Enska félagið greiðir rúmlega átján milljónir punda fyrir Jaouen, sem er talinn einn efnilegasti markvörður Frakklands.
FRÉTTIR10.06.2026, 10:25
Jadon Sancho hefur yfirgefið Manchester United og er hann falur á frjálsri sölu. Félagið keypti hann fyrir fimm árum á 73 milljónir punda.
United ákvað að nýta ekki ákvæði um að framlengja samning hans um eitt ár. En kantmaðurinn þénaði 250 þúsund pund á viku.
FRÉTTIR09.06.2026, 23:18
Úlfarnir eru að styrkja hópinn sinn fyrir komandi átök í Championship deildinni eftir fall úr úrvalsdeildinni. Þeir kræktu í Kieran Trippier á frjálsri sölu frá Newcastle í gærkvöldi og eru búnir að krækja í annan reynslubolta, framherjann Raúl Jiménez.
FRÉTTIR09.06.2026, 22:14
Portúgalska stórveldið Benfica er búið að staðfesta félagaskipti José Mourinho til Real Madrid með færslu á samfélagsmiðlum.