Rashford verður ekki hjá Barcelona á næsta tímabili - Man Utd kemur mikið við sögu í slúðurpakka dagsins
   mið 10. júní 2026 10:25
Kári Snorrason
Man Utd losar Sancho (Staðfest) - Casemiro og Malacia kvaddir
Mynd: EPA
Jadon Sancho hefur yfirgefið Manchester United og er hann falur á frjálsri sölu. Félagið keypti hann fyrir fimm árum á 73 milljónir punda.

United ákvað að nýta ekki ákvæði um að framlengja samning hans um eitt ár. En kantmaðurinn þénaði 250 þúsund pund á viku.

United tilkynnti um brotthvarf Sancho á samfélagsmiðlum fyrir skemmstu en þá kvaddi félagið jafnframt Casemiro og Tyrell Malacia.

Sancho gekk til liðs við United árið 2021 og lék 83 leiki fyrir félagið. Hann vann enska deildabikarinn 2023 en var síðar lánaður til Borussia Dortmund, Chelsea og Aston Villa.


Slapp
banner
banner